Bretland
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
|||||
Kjörorð: Dieu et mon droit (franska: Guð og réttur minn) | |||||
Þjóðsöngur: God Save the Queen | |||||
![]() |
|||||
Höfuðborg | London | ||||
Opinbert tungumál | ekkert tilgrein —enska í raun | ||||
Stjórnarfar | Stjórnarskrárbundin konungsstjórn Elísabet II Gordon Brown |
||||
Aðild að Evrópusambandinu | 1973 | ||||
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
76. sæti 244.820 km² 1,3 |
||||
Mannfjöldi • Samtals (2003) • Þéttleiki byggðar |
21. sæti 59.553.700 88,39/km² |
||||
VLF (KMJ) • Samtals • á mann |
áætl. 2006 2.373.000.000 millj. dala (5. sæti) 38.624 dalir (13. sæti) |
||||
VÞL | ![]() |
||||
Gjaldmiðill | Sterlingspund (£) (GBP) | ||||
Tímabelti | UTC+0 (UTC+1 á sumrin) | ||||
Þjóðarlén | .uk | ||||
Landsnúmer | 44 |
Hið sameinaða konungsríki Stóra-Bretlands og Norður-Írlands (enska United Kingdom of Great Britain and Northern Ireland) oftast þekkt á Íslandi sem Bretland eða Stóra Bretland er land í vestur Evrópu. Landið nær yfir megnið af Bretlandseyjum fyrir utan Ermarsundseyjar, Mön og megnið af Írlandi. Bretland skiptist í England, Wales, Skotland og Norður-Írland. Fyrir utan landamæri Norður-Írland og Írska lýðveldisins er Bretland er umkringt af Atlantshafi, Norðursjó, Ermarsundi og Írlandshafi. Ermarsundsgöngin tengja Bretland og Frakkland.
Á íslensku hefur skapast sú venja að tala um Bretland sem ríkið en Stóra-Bretland sem eyjuna þar sem England, Skotland og Wales eru. Hafa ber í huga að sú nafngift getur verið ruglandi þar sem ríkið nær einnig yfir Norður-Írland sem er ekki partur af Stóra Bretlandi.
Í Bretland er þingræði og þingbundin konungsstjórn og Elísabet II er þjóðhöfðinginn. Ermarsundseyjarnar og Mön eru svokallaðar krúnunýlendur og eru ekki hluti af Bretlandi þrátt fyrir að vera í konungssambandi með því. Bretland ræður yfir fjórtán hjálendum sem allar voru hluti af breska heimsveldinu. Það var það stærsta sem sagan hefur kynnst og náði hátindi á Viktoríutímanum seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta 20. aldar.
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði