Vísitala um þróun lífsgæða
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vísitala um þróun lífsgæða (e. Human Development Index (HDI)) er stuðull eða vísitala sem mælir lífslíkur, læsi, menntun og lífsgæði. Þessi mælikvarði gefur lauslega til kynna hvort land teljist til þróaðra landa eða þróunarlanda. Mælikvarðinn var hannaður af pakistanska hagfræðingnum Mahbub ul Haq árið 1990 og hefur verið notaður í árlegum skýrslum Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1993. Á hverju ári er reynt að meta öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samkvæmt þessari aðferð.
Vægi vísitölunnar byggist á þremur þáttum.
- Meðal lífslíkur frá fæðingu
- Hlutfall læsis á meðal fullorðinna og hlutfall sem stundar nám við skóla á öllum stigum.
- Lífsgæði mæld með vergri landsframleiðslu með kaupmáttarjöfnuði í bandarískum dölum.
Einnig er til vísitala fátæktar.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Tenglar
- Vefsíða árlegrar skýrslu Þróunaráætlunnar Sameinuðu þjóðanna
- Reiknivél á heimasíðu Þróunaráætlunnar Sameinuðu þjóðanna sem útskýrir hvernig HDI er reiknað út
- Vísindavefurinn: „Hvaða land er það vanþróaðasta í heimi?“
- Mbl.is: Lífskjör í fátækustu löndunum versna. Skoðað 11. febrúar, 2007.