Ísland
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
|||||
Kjörorð: ekkert | |||||
Þjóðsöngur: Lofsöngur | |||||
Höfuðborg | Reykjavík | ||||
Opinbert tungumál | íslenska | ||||
Stjórnarfar | Lýðveldi Ólafur Ragnar Grímsson Geir H. Haarde |
||||
Sjálfstæði |
undan Danmörku |
||||
- Heimastjórn | 1. febrúar 1904 | ||||
- Fullveldi | 1. desember 1918 | ||||
- Lýðveldi | 17. júní 1944 | ||||
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
105. sæti 103.125 km² 2,7% |
||||
Mannfjöldi • Samtals (Janúar 2008) • Þéttleiki byggðar |
169. sæti 313,376 3,1/km² |
||||
VLF (KMJ) • Samtals • á mann |
áætl. 2005 10.531 millj. dala (135. sæti) 35.546 dalir (5. sæti) |
||||
VÞL | 0,968 (1. sæti) | ||||
Gjaldmiðill | króna (ISK) | ||||
Tímabelti | UTC+0 (enginn sumartími) | ||||
Þjóðarlén | .is | ||||
Landsnúmer | 354 |
Lýðveldið Ísland er eyríki í Norður-Atlantshafi á milli Grænlands, Færeyja og Noregs. Ísland er um 103.000 km² að stærð; það er önnur stærsta eyja í Evrópu og sú átjánda stærsta í heimi. Á Íslandi búa um það bil 313.000 manns. Höfuðborg landsins er Reykjavík.
Landnámabók segir frá hvernig landnám Íslands hófst kringum árið 874 þegar Ingólfur Arnarson nam hér land, þó aðrir höfðu áður dvalið tímabundið á landinu. Á næstu áratugum og öldum flutti fjöldi fólks til Íslands á tímabili sem nefnt er landnámsöld. Ísland komst með Gamla sáttmála undir vald Noregs árið 1262 og var undir stjórn Norðmanna og Dana til ársins 1918, þegar það hlaut fullveldi. Danska ríkið fór þó með utanríkismál og landhelgisgæslu fyrir hönd Íslands og löndin höfðu sameiginlegan konung þar til lýðveldi var stofnað á Íslandi 1944. Landið hefur gengið undir ýmsum nöfnum, einkum meðal ljóðskálda (sjá grein Heiti yfir Ísland).
Á síðari hluta 20. aldar jókst þjóðarframleiðsla Íslendinga til muna og innviðir og velferðarkerfi landsins efldust. Nú er Ísland þróaðasta land heims, samkvæmt vísitölu SÞ um þróun lífsgæða. Ísland er meðlimur í SÞ, NATO, EFTA og EES.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
-
Aðalgrein: Saga Íslands
Ísland var, samkvæmt Íslendingabók Ara fróða, fyrst numið af norskum og keltneskum (skoskum og írskum) landnemum undir lok níundu og tíundu aldar. Þar var næstelsta (og það elsta sem enn er starfandi), þjóðþingið, Alþingi, stofnað árið 930.
Ísland var ekki sett undir erlend ríki fyrr en næstum fjórum öldum eftir að það var fyrst numið. Þá fór svo að Noregskonungur náði landinu undir sína krúnu (1262). Síðar varð Ísland svo hluti af danska ríkinu árið 1380.
Ísland fékk stjórnarskrá og takmarkaða heimastjórn árið 1874 á þjóðhátíð í tilefni af 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar (þar sem núverandi þjóðsöngur landsins, Lofsöngur var frumfluttur), fullveldi fylgdi í kjölfarið árið 1918. Danski konungurinn var sameiginlegur þjóðhöfðingi Danmörkur og Íslands til ársins 1944, þegar lýðveldið var stofnað.
[breyta] Stjórnmál
-
Aðalgrein: Íslensk stjórnmál
Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn. Framkvæmdavaldið liggur hjá forseta og ríkisstjórn. Æðsti maður ríkisstjórnar er forsætisráðherra. Ríkisstjórnin ber ábyrgð gagnvart Alþingi, sem er handhafi löggjafarvaldsins ásamt forseta. Dómsvald er í höndum dómstóla; æðsti dómstóll landsins er Hæstiréttur.
Forseti Íslands er þjóðhöfðingi landsins og er þjóðkjörinn í beinni kosningu allra kjörbærra manna. Kjörtímabil hans er 4 ár. Forseti er ábyrgðarlaus á ríkisstjórnarathöfnum og lætur ráðherra framkvæma vald sitt. Hann veitir formönnum stjórnmálaflokka umboð til stjórnarmyndunar eftir kosningar til Alþingis og skipar ráðherra en oftast er þessu ferli í raun stýrt af stjórnmálaflokkunum sjálfum, aðeins þegar þeir geta ómögulega komist að niðurstöðu sjálfir nýtir forsetinn sér þetta vald og skipar sjálfur ríkisstjórn. Þetta hefur þó ekki gerst í sögu lýðveldisins en gerðist 1942 þegar Sveinn Björnsson, þáverandi ríkisstjóri Íslands, skipaði utanþingsstjórn. Forseti Íslands hefur málskotsrétt gagnvart þinglögum samkvæmt stjórnarskrá og ber þá að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu en lögin taka samt gildi, þangað til þau eru afnumin eða staðfest með þjóðaratkvæði.[1] Núverandi forseti er Ólafur Ragnar Grímsson, sem tók við embættinu árið 1996. Hann nýtti sér málskotsréttinn fyrstur forseta á Íslandi, þegar hann neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin árið 2004.
Alþingi, löggjafarþing Íslands, starfar í einni deild. 63 þingmenn þess eru kjörnir hlutfallskosningu í 6 kjördæmum. Kjörtímabilið er 4 ár en getur verið styttra ef það kemur til þingrofs en vald til að rjúfa þing liggur hjá ríkisstjórninni. Ráðherrar eiga einnig sæti á Alþingi en hafa ekki atkvæðarétt nema þeir séu einnig þingmenn en sú er reyndar venjan. Alþingi velur sér forseta til að hafa yfirumsjón með fundum þess, núverandi forseti Alþingis er Sturla Böðvarsson. Ríkisstjórnir á Íslandi eru nánast ávallt samsteypustjórnir tveggja eða fleiri flokka en einnig eru dæmi til um minnihlutastjórnir, einkum og sér í lagi vegna þess að enginn flokkur hefur hlotið hreinan meirihluta á þingi, í það minnsta ekki frá endurreisn lýðveldis. Núverandi ríkisstjórn er samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undir forystu Geirs H. Haarde forsætisráðherra.
[breyta] Skipting í stjórnsýsluumdæmi
[breyta] Kjördæmi
-
Aðalgrein: Kjördæmi Íslands
Íslandi er skipt upp í 6 kjördæmi sem kjósa sína fulltrúa á Alþingi.
[breyta] Sveitarstjórn
-
Aðalgrein: Sveitarfélög á Íslandi
Íslandi er skipt upp í 104 sveitarfélög sem eru mikilvægustu stjórnsýslueiningar landsins og hafa víðtæk völd á sviði skólamála, skipulags, samgangna og félagsmála.
[breyta] Sýslur
-
Aðalgrein: Sýslur á Íslandi
Íslandi hefur frá fornu fari verið skipt upp í sýslur til umboðsstjórnar. Hinar gömlu landfræðilegu sýslur eru ekki lengur formlegar stjórnsýslueiningar á Íslandi, sýslumenn eru enn þá við lýði en umdæmi þeirra fylgja ekki alltaf gömlu sýsluskiptingunni.
[breyta] Landafræði
-
Aðalgrein: Landafræði Íslands
Ísland er staðsett á heitum reit á Atlantshafshryggnum. Það er 102.800 ferkílómetrar að stærð. Þar eru mörg virk eldfjöll (sjá eldfjöll Íslands) og ber þar helst að nefna Heklu (1491m). Um það bil 10% eyjarinnar er undir jöklum. Á Íslandi eru hverir víða, og gnótt jarðhita færir íbúunum heitt vatn, sem meðal annars er notað til húshitunar.
Ísland er önnur stærsta eyja Evrópu, á eftir Bretlandi. Eyjan er vogskorin, og flestir bæir standa við firði, víkur og voga. Helstu þéttbýlisstaðir eru höfuðborgin Reykjavík, Keflavík, þar sem einn af alþjóðlegum flugvöllum landsins er staddur, og Akureyri.
Ísland liggur á tveimur jarðskorpuflekum, Norður-Ameríkuflekanum og Evrasíuflekanum. Landið telst sögulega til Evrópu.
[breyta] Efnahagsmál
-
Aðalgrein: Efnahagur Íslands
Efnahagur þjóðarinnar byggir enn að talsverðu leyti á fiskveiðum, sem afla nær 40% útflutningstekna og veita 8% vinnandi manna störf. Þar sem aðrar náttúruauðlindir skortir (fyrir utan jarðhita og fallvötn til virkjunar), er efnahagslíf á Íslandi viðkvæmt og háð heimsmarkaðsverði á fiski og sjávarafurðum. Auk þess geta minnkandi fiskstofnar í efnahagslögsögu landsins haft töluverð áhrif á sveiflur í efnahagslífinu og heimsmarkaðsverð á áli og kísilgúri sem eru stærstu útflutningsvörur Íslendinga á eftir sjávarafurðum.
Stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, sat við stjórnartaumana frá 1995 til 2007. Hún hafði á stefnuskránni að draga úr ríkisumsvifum og einkavæða ríkisfyrirtæki. Ríkisútgjöld, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, hafa þó vaxið síðustu ár. Núverandi ríkisstjórn er andvíg inngöngu í Evrópusambandið. Nú sitja í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylking, tveir stærstu flokkarnir í íslenskri pólitík. Geir H. Haardre forsætisráðherra fer fyrir henni.
Fjölbreytileiki í efnahagslífinu hefur aukist undanfarna tvo áratugi. Ferðaþjónusta verður æ fyrirferðameiri, og reyna Íslendingar að lokka til sín útlendinga með auglýsingum um hreina og ómengaða náttúru og öflugt næturlíf. Nokkuð dró úr hagvexti á árunum 2000 til 2002, en árið 2002 var hann neikvæður um 0,6%, frá 2003 hefur hagvöxtur hins vegar verið drjúgur en efnahagur í samanburði við nágrannalönd einkennst af óstöðugleika.
[breyta] Lýðfræði
-
Aðalgrein: Lýðfræði Íslands
Íslendingar eru í megindráttum norræn þjóð. Landið byggðist upphaflega norrænum mönnum, einkum frá Noregi og Keltum frá nýlendum víkinga á Bretlandseyjum og Íslendingar hafa í gegnum tíðina átt mest samskipti við helstu fiskveiðiþjóðir á Norður-Atlantshafi. Til er kenning um að Íslendingar séu að uppruna sérstakur þjóðflokkur, aðgreindur frá öðrum þjóðflokkum á norðurlöndum („Herúlakenningin“). Á síðari tímum hafa ýmsar kenningar um uppruna þjóðarinnar verið settar fram með erfðafræðilegum rökum. Þá er talað um að flestar konur sem hingað komu hafi verið keltneskar (flestar ambáttir) en karlarnir að miklu leyti norrænir.
Íbúafjöldi landsins sveiflaðist á milli um 30.000 og 80.000 við hefðbundinn efnahag í bændasamfélagi fyrri alda. Á 19. og 20. öld hefur Íslendingum fjölgað nokkuð ört og nú eru íbúar landsins rétt rúmlega 315.000 auk nokkurra þúsunda af íslenskum uppruna sem ekki eru búsett á Íslandi.
Á Íslandi er töluð íslenska, sem er norrænt tungumál, og flestir íbúar landsins eru í hinni evangelísk-lúthersku þjóðkirkju.
Mikil fjölgun hefur verið á erlendum ríkisborgurum hérlendis en árið 2005 fjölgaði þeim um 29,5% og árið 2006 var fjölgunin 34,7%.[2] Árið 2007 voru erlendir ríkisborgarar 18.563 talsins (6% af íbúum Íslands), og þann 1. janúar 2008 voru 21.434 erlendir ríkisborgarar skráðir (6,8% af íbúum Íslands).[2] Það er 15,5% fjölgun árið 2007. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda Íslands er nú hærra en annars staðar á Norðurlöndum, en árið 2006 var það næst hæst í Svíþjóð eða um 5,4%.[2] Konur voru jafnan fjölmennari í hópi erlendra ríkisborgara til árins 2003, en síðan 2004 hafa karlar verið fjölmennari en konur. Í árslok 2007 voru karlar með erlent ríkisfang 8,1% allra karla en konur 5,5% allra kvenna.[2]
[breyta] Menning
-
Aðalgrein: Íslensk menning
[breyta] Þekktir Íslendingar
[breyta] Frá miðöldum
[breyta] Listamenn
- Louisa Matthíasdóttir
- Laddi
- Alfreð Gíslason
[breyta] Rithöfundar
[breyta] Tónlistarmenn og hljómsveitir
[breyta] Kvikmynda- og bókmenntaverðlaun
Árlega eru veitt verðlaun fyrir afrek liðins árs í bókmenntum og kvikmyndagerð á Íslandi. Edduverðlaunin eru verðlaun sem veitt eru þeim sem þykja hafa skarað fram úr á sviði kvikmynda og sjónvarps. Síðar á árinu eru Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent því fólki sem talið er hafa borið af á ritvellinum.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Neðanmálsgreinar
- ↑ Deildar meiningar eru um raunveruleg völd forsetans, þá sérstaklega hvort hann geti neitað að skrifa undir lög og hvort slíkur gjörningur hafi einhverjar afleiðingar. Í stjórnarskránni er sagt að slík synjun kalli á þjóðaratkvæðagreiðslu um lögin, en hins vegar lætur forseti ráðherra framkvæma vald sitt og eru margir á þeirri skoðun að það gildi um þetta vald eins og önnur völd forseta.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 2,3 6,8% íbúa erlendir ríkisborgarar. Mbl.is (11. mars 2008).
[breyta] Tenglar
- Alþingi
- Ríkisstjórnin
- http://www.iceland.org/
- http://www.iceland.is/
- http://www.islandsmyndir.is/
- Vísindavefurinn: „Hvað er séríslenskt?“
[breyta] Blaðagreinar
- Ísland og Íslendingar; grein í Tímariti hins íslenska bókmenntafélags 1887
- Hver var fyrstur?; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971
- Hverjir fundu Ísland?; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1968
- Hinir syndugu kvaldir í ísi og eldi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1996
Enskar greinar:
- No wonder Iceland has the happiest people on earth, grein í Observer e. John Carlin
- The Big Question: Is Iceland the happiest place on the planet, and what can we learn from it?, grein í The Independent e. Paul Vallely
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði