Georgía
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- „Georgía“ getur einnig átt við bandaríska fylkið Georgíu.
|
|||||
Kjörorð: ძალა ერთობაშია (georgíska: Aflið er í samstöðu) |
|||||
Þjóðsöngur: Tavisupleba | |||||
Höfuðborg | Tíblisi | ||||
Opinbert tungumál | Georgíska | ||||
Stjórnarfar
Forseti
Forsætisráðherra |
Lýðveldi Mikhail Saakashvili Michael Jeffery |
||||
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
118. sæti 69.700 km² - |
||||
Mannfjöldi • Samtals (2005) • Þéttleiki byggðar |
114. sæti 4.661.473 67/km² |
||||
VLF (KMJ) • Samtals • á mann |
áætl. 2005 17.790 millj. dala (122. sæti) 3.800 dalir (119. sæti) |
||||
Gjaldmiðill | Georgískur lari | ||||
Tímabelti | UTC +3 til +4 | ||||
Þjóðarlén | .ge | ||||
Landsnúmer | 995 |
Georgía (georgíska : საქართველო; Sakartvelo) er evrasískt land í Kákasusfjöllum, við austurströnd Svartahafs. Georgía á landamæri að Rússlandi í norðri, Tyrklandi og Armeníu í suðri og Aserbaídsjan í austri. Georgía liggur í Austur-Evrópu og Vestur-Asíu en á flest öll stjórnmálaleg og menningarleg tengsl við Evrópu.
Á því svæði sem nú til dags þekkist sem Georgía hefur einatt verið búið síðan snemma á steinöld. Í fornöld voru þar konungsríkin Kolkis og Íbería, sem lögðu drög að menningu Georgíu. Löndin tóku upp kristna trú snemma á 3. öld og sameinuðust í eitt ríki árið 1008. Georgía gekk í gegnum tímabil sem einkenndust af upplausnum og uppbyggingum þar til að landið brotnaði niður í nokkrar minni einingar á 16. öld. Rússaveldi tók smám saman yfir landi Georgíu á árunum 1801-1866. Lýðveldið Georgía var skammlíft lýðræðisríki á árunum 1918-1921, á árunum fyrir rússnesku byltinguna. Það féll í hendur Sóvétríkjanna árið 1922. Georgía hlaut svo sjálfstæði á ný árið 1991 og eftir borgarastyrjöld og efnahagskreppur náðist tiltölulegt jafnvægi á síðari hluta 10. áratugsins. Árið 2003 fór fram bylting sem nefndist Rósarbyltingin og fór alfarið án blóðsúthellinga. Komst þá að völdum ný ríkisstjórn sem stefni að því aðganga í Atlantshafsbandalagið. Tilraunir nýju ríkisstjórnarinnar til að koma aðskildu svæðunum aftur undir stjórn Georgíu hafa orðið til þess að erjur hafa orðið á milli Rússlands og Georgíu.
Landslag Georgíu er allt frá því að vera hálent í Kákasusfjöllum, til þess að vera heittemprað við strandlengjuna við Svartahaf, sem dregur að túrisma. Landbúnaður nær aftur til fornaldar og er ennþá mikilvægur þáttur í efnahag landsins.
Georgía er fulltrúalýðræði, skipulagt sem samræmt, nokkurs konar forsetalýðveldi. Georgía er meðlimur Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðs, Samveldis sjálfstæðra ríkja, Alþjóðaviðskiptastofnaninnar og Svartahafsefnahagssamvinnusamtakanna, og hefur áhuga á að ganga í Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið.
Efnisyfirlit |
[breyta] Orðsifjafræði
Forngrikkir og Rómverjar kölluðu Austur-Georgíumenn Íbera og Vestur-Georgíumenn Kolka. Georgíumenn kalla sjálfa sig Kartvelebi (ქართველები), landið sitt Sakartvelo (საქართველო) og tungumálið sitt Kartuli (ქართული). Samkvæmt biblíunni er forfaðir kartvelska fólksins Kartlos, barnabarnabarn Jafets sonar Nóa. Öll lönd heims nema Armenía þekkja landið sem Georgíu. Minnst er á Georgíu og Georgíumenn í fjölmörgum ritum frá miðöldum. Það hefur verið ranglega gert ráð fyrir því að nafn landsins sé komið frá St. George, verndara landsins. Það hefur einnig verið haldið að nafnið koma frá fornpersneska orðinu gurj eða gorg, sem merkir glæsilegt (enska: gorgeous) á frumindóevrópskum málum. Einnig hefur verið haldið að Grikkir hafi nefnt landið Georgíu vegna landbúnaðarlegra auðlinda þess, því að Georgía (γεωργία) merkir búskapur á grísku. En þrátt fyrir það er uppruni nafnsins enn þá óljós og umdeildur.
[breyta] Saga
Saga Georgíu og georgísku þjóðarinnar nær 5000 ár aftur í tímann.
[breyta] Georgía á fornöld
Tvö konungsríki voru í Georgíu á fornöld, sem Rómverjar og Forngrikkir þekktu undir nöfnunum Íbería og Kolkis. Þessi tvö konungsríki voru meðal fyrstu þjóða heims til að taka upp kristna trú, árið 319 eða 337 samkvæmt nýlegum rannsóknum.
Í gríski goðafræði var Kolkis staðsetning gullna reyfisins sem Jason og aragóarfararnir leituðu að í Argonautica, hetjusögu Apolloníusar Ródíusar. Möguleg ástæða þess að gullna reyfið hafi orðið hluti að goðsögninni gæti verið sú að á þessum tíma notuðu Georgíumenn reyfi til að sía gullryk úr ám. Kolkis, sem innfæddir nefndu Egrisi eða Lazica, átti oft í erjum við Persíu og Austrómverska ríkið, sem nokkrum sinnum náðu að leggja Vestur-Georgíu undir sig. Fyrir vikið sundruðust konungsríkin í nokkur minni umdæmi rétt fyrir upphaf miðalda. Þetta auðveldaði fyrir Aröbum að ráðast inn í Georgíu á 7. öld. Á 11. öld voru uppreisnakenndu umdæmin frelsuð og sameinuðust í nýju georgísku konungsríki. Í byrjun 12. aldar stækkaði landsvæði Georgíu, og náði það nú yfir nokkurn hluta Suður-Kákasusfjalla og næstum alla norðurströnd þess svæðis sem nú er Tyrkland.
[breyta] Georgía á miðöldum
Georgíska konungsríkið náði hápunkti sínum á tólftu öld og í byrjun þeirrar þrettándu. Þetta tímabil hefur oft verið nefnt gullöld Georgíu eða endurreisnartímabil Georgíu. Þrátt fyrir það var endurreist konungsríkið stuttlíft og að lokum réðust Mongólar inn í það árið 1236. Upp frá því börðust ýmsar stjórnir innan héraða landsins fyrir sjálfstæði frá Georgíska konungsríkinu þar til það sundraðist á 15. öld. Nágrannaríkin notfærðu sér stöðuna í landinu og á 16. öld réðust Persnesku og Ottómönsku heimsveldin hver um sig inn í austur- og vesturhéruð Georgíu.
Leiðtogar þeirra héraða sem héldu áfram hálfgerðri sjálfstjórn skiplögðu uppreisnir við allmörg tilefni. Seinni innrásir Persa og Tyrkja drógu enn meir úr mætti konungsríkja og héraða á svæðinu.
Vegna stríða við nágrannaríki drógst svo úr íbúafjölda Georgíu að hann fór niður í 250.000 manns á tímabili.
[breyta] Georgía innan Rússaveldis
Árið 1783 skrifuðu Rússland og georgíska konungsríkið Kartli-Kakheti undir milliríkjasamning sem tryggði það að Rússar vernduðu Kartli-Kakheti. Þetta hindraði þó ekki innrás Persa í Tíblisi árið 1795. Þann 22. desember 1800 skrifaði Paul I rússakeisari undir yfirlýsingu þess að Georgía (Kartli-Kakheti) yrði hluti af Rússaveldi að beiðni Georgs XII, þáverandi konungs Georgíu. Þann 8. janúar 1801 skrifaði hann svo undir úrskurð þess að Kartli-Kakheti yrði hluti af Rússaveldi, sem var staðfest af Alexander I rússakeisara þann 12. september 1801.
Aðalsættir Georgíu viðurkenndu ekki úrskurðinn fyrr en í apríl 1802 þegar að Knorring hershöfðingi safnaði þeim saman í Dómkirkju Tbilisi og þvingaði fólkið til að sverja eið við keisarakrúnu Rússa. Þeir sem að voru á móti þessu voru tímabundið handteknir. Sumarið 1805 sigruðu rússneskir hermenn persneska herinn við Askerani fljót nálægt Zagam og björguðu Tbilisi frá hertöku.
Árið 1810 innlimaði Alexander I rússakeisari Konungsríkið Imereti eftir að hafa herjað stutt stríð. Síðasti imeretíski kongurinn og síðasti Bagrationinn Solomon II dóu í útlegð árið 1815. Á árunum 1803 til 1878 voru þónokkur stríð herjuð gegn Íran og Tyrklandi, og fyrir vikið voru nokkur svæði innlimuð sem hluti af Georgíu. Þau svæði eru Batumi, Akhaltsikhe, Poti og Abkasía og eru þau nú stór hluti af Georgíu. Furstadæmið Guria var afnumið árið 1828 og Samegrelo (Mingrelia) árið 1857. Svaneti-svæðið var smám saman innlimað á árunum 1857-1859.
[breyta] Stutt sjálfstæði og Sovétstjórn
Þann 26. maí árið 1918 á meðan að rússneska borgarastyrjöldin stóð sem hæst lýsti Georgía yfir sjálfstæði. Georgíski alþýðuflokkurinn bar sigur úr býtum í lýðræðislegum kosningum. Talið var að flokkurinn væri skipaður Mensevítum og var leiðtogi flokksins, Noe Zhordania, gerður forsætisráðherra. Árið 1918 braust út stríð á milli Georgíu og Armeníu í þeim hlutum Georgíu sem voru að mestmegnis innbyggðir af Armenum, sem tók enda vegna afskipta frá Bretum.
Í febrúar 1921 var ráðist á Georgíu af Rauða hernum. Georgíski herinn tapaði orrustunni og þurftu meðlimir ríkisstjórnarinnar að flýja land. Þann 25. febrúar 1921 kom Rauði herinn til höfuðborgarinnar Tbilisi og kom á laggirnar kommúnískri leppstjórn, sem stjórnað var af georgíska Bolsjevíkanum Filipp Makharadze. Sóvétríkin tóku svo yfir landinu eftir uppreisnina árið 1924. Georgía var gerð hluti af Transkákasíska SFSR-sambandinu sem sameinaði Georgíu, Armeníu og Aserbaídsjan. TSFSR-sambandinu var svo aftur skipt niður í þær einingar sem það áður var, sem gerði Georgíu að Sósíalíska Sovétlýðveldinu Georgíu.
Hinn georgíski Ioseb Jughashvili (betur þekktur sem Jósef Stalín) var áberandi á meðal rússneskra bolsjevíka, sem risu til valda innan Rússaveldis eftir Októberbyltinguna árið 1917. Stalín átti eftir að gegna valdamestu stöðu Sovétríkisins.
Á árunum 1941 til 1945, á meðan Seinni heimstyrjöldin stóð á, börðust nærri því 700.000 Georgíumenn með Rauða hernum í baráttunni gegn Nasistum. Einnig börðust einhverjir með þýska hernum. Um 350.000 Georgíumenn fórust á vígvöllum Austur vígstöðvanna. Á þessum tímapunkti var Téténum, Ingussu, Karötsjum og Balkörum frá Norður-Kákasus-svæðinu vísað úr landi, og sendir til Síberíu vegna meints samstarfs við Nasista. Lýðveldi þeirra voru því afnumin og hlaut Sósíalíska Sovétlýðveldið Georgía nokkuð af landsvæði þeirra í stuttan tíma, til ársins 1957.
Á 7. áratugnum jókst andóf gegn Rússum og stuðningur við sjálfstæði Georgíu. Á meðal georgískra andófsmanna voru Merb Kostava og Zviad Gamsakhurdia efst á baugi. Andófsmenn voru ásóttir af sovésku ríkisstjórninni og var starfsemi þeirra harkalega bæld niður. Langflestir meðlimir georgískra andófshreyfinga voru fangelsaðir af sovéskum yfirvöldum.
[breyta] Landafræði
Georgía stendur við Svartahaf og á landamæri að Rússlandi, Aserbaídsjan, Armeníu og Tyrklandi og er á breiddargráðu 42'00°N og 43'30°A á bauganetinu. Georgía er staðsett í Kákasusfjöllum og er því að stórum hluta hátt yfir sjávarmáli, en við strandlengjuna er láglendi. Hæsti punktur landsins er Shkharafjall, sem er 5201 metrar. Veðurfar er breytilegt, við strandlengjuna er miðjarðarloftslag, í austurhluta landsins eru heit sumur, en einkar kaldir vetrar.
[breyta] Lýðfræði
[breyta] Þjóðarbrot
Fjöldinn allur af þjóðarbrotum eru í landinu. Þrjú sjálfsstjórnarsvæði eru í Georgíu. Í norðvesturhluta landsins er Abkhazía, Ajaría í suðvesturhlutanum og Suður-Ossetía í norðurhlutanum. Stór hluti íbúa þessara svæða hafa sérstaka menningu og tungumál. Um 70% íbúa Georgíu eru Georgíumenn að uppruna, um 8% eru Armenar, Rússar eru rúmlega 6% og Aserar tæplega 6%. Um 3% eru Ossetíumenn, tæp 2% eru Abkhazar og 5% tilheyra öðrum þjóðarbrotum. Rúm 17% íbúanna eru á aldrinum 0-14 ára, rúm 66% á aldrinum 15-64 ára og 16.5% yfir 65 ára aldri. Lífslíkur eru 76 ár.
[breyta] Tungumál
Opinbert tungumál Georgíu er georgíska og er það móðurmál rúmlega 70% íbúa. Málið fellur undir suðurkákasísku tungumálafjölskylduna. Uppruni georgísku er óljós, en líkist málið ekki neinu af helstu tungumálum heims. Málið hefur stafróf sem rekja má til 5. aldar. Fleiri tungumál eru töluð í Georgíu, oft af minnihlutahópum. Rússneska er móðurmál 9% íbúanna, armenska er móðurmál 7% þeirra og 6% tala aserísku. Abkazar segja abkasísku opinbert mál Abkhazíu og í Suður-Ossetíu er töluð ossetíska.
[breyta] Trúarbrögð
Í Georgíu eru flestir íbúanna kristnir og tilheyra georgísku-, rússnesku- eða armensku rétttrúnaðarkirkjunni. Tæpur fimmtungur íbúanna eru múslimar, þá fyrst og fremst Aserar, Ajaríumenn og Kúrdar. Um tveir fimmtu hlutar íbúanna tilheyra ekki neinum ákveðnum trúarbrögðum.
[breyta] Atvinna
Landbúnaður og þjónusta eru ásamt iðnaði helstu atvinnuvegir Georgíu. Meðal helstu landbúnaðarafurða eru te og ávextir. Georgía er auðug af jarðefnum og má þar nefna mangan, kol, járn og marmara. Helstu iðngreinar eru framleiðsla úr stáli og öðrum málmum, tóbaksiðnaður og víngerð, en vín er meðal helstu útflutningsvara landsins. Við landbúnað starfa 40% íbúanna, 20% við iðnað og 40% við þjónustu.
[breyta] Stjórnarfar
Í Georgíu er lýðveldi sem hefur verið alveg frá því að landið fékk sjálfstæði eftir hrun Sovétríkjanna árið 1991. Núverandi forseti er Mikheil Saakashvili og núverandi forsætisráðherra er Zurab Noghaideli.
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði
Afganistan · Armenía1 · Aserbaídsjan (að hluta) · Austur-Tímor · Bangladess · Barein · Brúnei · Bútan · Egyptaland (að hluta) · Filippseyjar · Georgía1 (að hluta) · Heimastjórnarsvæði Palestínumanna · Indland · Indónesía · Íran · Írak · Ísrael · Japan · Jemen · Jórdanía · Kambódía · Kasakstan (að hluta) · Katar · Kirgistan · Kína · Kúveit · Kýpur1 · Laos · Líbanon · Malasía · Maldíveyjar · Mjanmar · Mongólía · Nepal · Norður-Kórea · Óman · Pakistan · Rússland (að hluta) · Sameinuðu arabísku furstadæmin · Sádí-Arabía · Singapúr · Srí Lanka · Suður-Kórea · Sýrland · Tadsjikistan · Taíland · Túrkmenistan · Tyrkland (að hluta) · Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur · Tævan · Úsbekistan · Víetnam
1. Venjulega talin til Asíu landfræðilega, en oft talin til Evrópulanda af menningarlegum og sögulegum ástæðum.