2005
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 2005 er í Gregoríanska tímatalinu almennt ár sem byrjar á laugardegi, það hefur verið kallað:
- Ár eðlisfræðinnar af International Union of Pure and Applied Physics.
- Ár lítilla lána af Sameinuðu Þjóðunum.
- Alþjóðaár íþrótta og líkamlegrar menntunar Sameinuðu Þjóðunum.
- Ár sjálfboðaliðans af fjármálaráðherra Bretlands, Gordon Brown.
- Ár kvöldmáltíðarsakraments Páls annars páfa.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
[breyta] Janúar
- 1. janúar - Ný líra tekur gildi sem gjaldmiðill Tyrklands en verðmæti einnar slíkrar samsvarar 1.000.000 af þeim gömlu.
- 9. janúar - Mahmoud Abbas er kosinn forseti sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna.
- 13. janúar - Myndir af Harry Bretaprins klæddum í nasistabúning á grímuballi eru fordæmdar.
- 21. janúar - Heilsíðuauglýsing birtist í The New York Times þar sem „Íslendingar“ biðja Íraka afsökunar á því að Ísland skuli vera á lista yfir hinar svokölluðu „Viljugu þjóðir“.
- 30. janúar - Fyrstu frjálsu þingkosningarnar í Írak frá árinu 1958 eru haldnar.
[breyta] Febrúar
- 10. febrúar - Karl Bretaprins tilkynnir trúlofun sína við Camilla Parker Bowles.
- 14. febrúar - Forsætisráðherra Líbanon, Rafik Hariri, auk 15 annarra, lætur lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í Beirút.
- 16. febrúar - Kyoto-bókunin tekur gildi án stuðnings Bandaríkjanna og Ástralíu.
- 22. febrúar - Rúmlega 500 manns láta lífið og yfir 1000 slasast í jarðskjálfa í suðurhluta Írans. Skjálftinn mældist 6,4 á Richterkvarða.
- 26. febrúar - Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, fer fram á að egypska þingið breyti stjórnarskránni til að leyfa fleiri en einn frambjóðanda í forsetakosningum.
[breyta] Mars
- 11. mars - Nintendo DS leikjatölvan er gefin út í Evrópu.
- 18. mars - Hjómsveitin Jakobínarína sigrar músíktilraunir með miklum meirihluta atkvæða, bæði dómnefndar og áhorfenda
- 24. mars - Túlípanabyltingin í Kirgistan nær hámarki þegar forseta landsins, Askar Akayev, er komið frá völdum.
[breyta] Apríl
- 2. apríl - Jóhannes Páll páfi II deyr og milljónir manna fylkjast til Vatikansins til að votta virðingu sína.
- 19. apríl - Benedikt XVI kjörinn páfi kaþólsku kirkjunnar.
- 27. apríl - Airbus A380, stærsta farþegaþota í heimi til þessa, fer í sitt fyrsta reynsluflug frá Toulouse í Frakklandi.
- 29. apríl - The Hitchhiker's Guide to the Galaxy kvikmyndin er frumsýnd í Bretlandi og Bandaríkjunum
[breyta] Maí
- 13. maí - Hermenn drepa hátt í 700 mótmælendur í austurhluta Úsbekistans.
- 17. maí - Konum er veittur kosningaréttur í Kúvæt.
- 21. maí - Grikkland sigrar Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrsta sinn í Kíev með laginu "My Number One".
[breyta] Júní
- 5. júní - Sviss samþykkir að ganga í Schengen og að leyfa fasta sambúð samkynhneigðra.
- 26. júní - Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, endurvígir minnisvarða um landnám Íslendinga í Spanish Fork.
- 30. júní - Spánn löggildir hjónabönd samkynhneigðra.
[breyta] Júlí
[breyta] Ágúst
- 9. ágúst - Benjamin Netanyahu, þá fjármálaráðherra Ísrael, segir af sér til að mótmæla áformum Ariel Sharon um að leggja niður landtökubyggðir gyðinga á Gaza.
- 14. ágúst - Farþegaþota með 121 mann um borð hrapar á Grikklandi í kjölfar þess að allir um borð missa meðvitund vegna snarlækkaðs loftþrýstings.
- 29. ágúst - Fellibylurinn Katrina veldur yfir 1600 dauðsföllum og gríðarlegri eyðileggingu á suðurströnd Bandaríkjanna.
[breyta] September
- 30. september - Umdeildar skopteikningar af Múhammeð spámanni eru birtar í danska dagblaðinu Jyllands Posten. Teikningarnar valda miklum usla og hörðum mótmælum meðal múslima um allan heim.
[breyta] Október
- 8. október - Um 80 þúsund manns farast í hörðum jarðskjálfta í Kasmír.
- 19. október - Réttarhöldin yfir Saddam Hussein hefjast.
- 21. október - Football Manager 2006 er gefinn út í Evrópu og víðar.
- 27. október - Miklar óeirðir hefjast í París vegna óánægju ungs fólks af erlendum uppruna. Óeirðir halda áfram vítt og breytt um landið næstu 3 vikurnar.
[breyta] Nóvember
- 9. nóvember - Rúmlega 50 manns láta lífið og um 120 særast í sjálfsmorðsprengjusárásum í Amman í Jórdaníu.
- 22. nóvember - Angela Merkel kjörin kanslari Þýskalands af þýska sambandsþinginu og verður hún fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún tekur við af Gerhard Schröder.
- 30. nóvember - Skurðlæknar í Frakklandi græða nýtt andlit á manneskju í fyrsta sinn í sögunni.
[breyta] Desember
- 1. desember - Suður Afríka heimilar hjónabönd samkynhneigðra.
- 7. desember - Evrópusambandið fer að nota lén undir þjóðarléninu .eu sem kemur í stað .eu.int.
- 18. desember - Ariel Sharon, forsætisrráðherra Ísraels er fluttur á sjúkráhús eftir heilablóðfall.
- 20. desember - Benjamin Netanyahu nær aftur völdum í verkamannaflokki Ísrael eftir brotthvarf Ariel Sharon.
[breyta] Fædd
- 15. október - Christian Valdemar Henri John, prins af Danmörku. Sonur Friðriks krónprins og Mary Elizabeth krónprinsessu.
[breyta] Dáin
- 10. febrúar - Arthur Miller, leikskáld (f. 1915).
- 2. apríl - Jóhannes Páll páfi II (f. 1920).
- 1. ágúst - Fahd bin Abdul Aziz al-Saud, konungur Sádí-Arabíu (f. 1923).
- 24. október - Rosa Parks, baráttukona fyrir réttindum blökkumanna (f. 1913).