Benjamin Netanyahu
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Benjamin Netanyahu (hebreska: בִּנְיָמִין נְתַנְיָהוּ) (f. 21. október, 1949 í Tel Aviv) var 9. forsætisráðherra Ísrael.
Netanyahu gegndi starfi forsætisráðherra fyrir ísraelska íhaldsflokkinn frá júní 1996 til júlí 1999. Hann er fyrsti og eini forsætisráðherra landsins sem er fæddur eftir að ríkið var stofnað, árið 1948. Hann var einnig fjármálaráðherra landsins þar til 9. ágúst 2005 þegar hann sagði af sér í kjölfar áætlunar þáverandi forsætisráðherra landsins, Ariel Sharon, um að leggja niður landtökubyggðir Ísraela á Gaza. Hann náði aftur völdum í íhaldsflokknum þann 20. desember sama ár eftir brotthvarf Ariel Sharons.
Hann gengur oft undir gælunafninu Bibi.