7. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 | ||||
2007 Allir dagar |
7. júlí er 188. dagur ársins (189. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 177 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1637 - Hornsteinn var lagður að Sívalaturni í Kaupmannahöfn.
- 1874 - Á Akureyri var vígður Gudmannsspítali, sem var til húsa í Aðalstræti 14, en það er elsta tvílyfta íbúðarhús á Íslandi, reist 1836.
- 1915 - Konur fögnuðu nýfengnum kosningarétti sínum með hátíðarfundi á Austurvelli. Sama dag stofnuðu þær Landspítalasjóð Íslands.
- 1922 - Lúðrasveit Reykjavíkur var stofnuð upp úr lúðrafélögunum Hörpu og Gígju og er hún elsta starfandi lúðrasveit á Íslandi.
- 1941 - Bandaríkjaher kom til landsins og tók við vörnum þess af Bretum. Síðustu hermennirnir fóru héðan í apríl 1947.
- 1966 - U Thant, aðalritari Sameinuðu þjóðanna kom í tveggja daga heimsókn til Íslands.
- 1974 - Kútter Sigurfari var settur á byggðasafnið í Görðum á Akranesi. Skipið var smíðað í Englandi 1885, var í eigu Íslendinga í byrjun tuttugustu aldar, var síðan færeyskt og kom til Akraness frá Færeyjum.
- 1974 - Vestur-Þýskaland vann heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu þegar lið landsins sigraði Hollendinga 2-1.
- 1978 - Salómonseyjar fengu sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1983 - Ray Charles skemmti á Broadway ásamt 25 manna hljómsveit.
- 2005 - Fjórar sjálfsmorðssprengjuárásir urðu 56 manns að bana í London.
[breyta] Fædd
- 1753 - Jean-Pierre Blanchard, franskur uppfinningamaður (f. 1809).
- 1860 - Gustav Mahler, austurrískt tónskáld (d. 1911).
- 1924 - Benedikt Gröndal, forsætisráðherra Íslands.
- 1940 - Ringo Starr, breskur tónlistarmaður.
- 1949 - Shelley Duvall, bandarísk leikkona.
- 1959 - Billy Campbell, bandarískur leikari.
- 1977 - Dís Sigurðardóttir, sögupersóna í bókinni Dís eftir Birnu Önnu Björnsdóttur, Oddnýu Sturludóttur og Silju Hauksdóttur.
- 1968 - Jorja Fox, bandarísk leikkona
- 1984 - Sigurður Arent Jónsson, listamaður.
[breyta] Dáin
- 1162 - Hákon herðibreið, Noregskonungur.
- 1307 - Játvarður 1. Englandskonungur (f. 1239).
- 1930 - Arthur Conan Doyle, skoskur rithöfundur (f. 1859).
- 1965 - Moshe Sharett, forsætisráðherra Ísraels (f. 1894).
- 2006 - Syd Barrett, breskur tónlistarmaður og einn stofnenda Pink Floyd (f. 1946).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |