Sólarhringur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sólarhringur er tímaeining, sem miðast við möndulsnúningstíma jarðar um sólu og er (oftast) miðað við 24 klukkustundir. Sólarhringur er ekki SI-mælieining.
Sólarhingur var upphaflega ákvarðaður út frá gangi sólar, þ.e. sönnum sóltíma og samkvæmt jarðmiðjukenningunni var einn sólarhringur sá tími sem það tók sólina að fara einn hring á himninum, frá austri til austurs á ný. Réttara þykir þó að tala um þann tíma sem það tekur jörðina að snúast einn hring um möndul sinn (sbr. sólmiðjukenningu). Sólarhringur sem þannig er mældur er ekki nákvæmlega 24 klukkustundir og munar í raun fjórum mínútum til að hann fylli 24 tímanna. Í raun tekur einn möndulsnúningur jarðar 23 klukkustundir, 56 mínútur og 4,091 sekúndur. En á þeim tíma hefur jörðin færst á braut sinni um sólu, og því hefur afstaða jarðar og sólar breyst. Það þýðir að jörðin þarf að snúast örlítið lengra til að sólin virðist á sama stað á himninum, en það tekur 3 mínútur og 55,909 sekúndur. Þess vegna er sólarhringurinn nákvæmlega 24 klukkustundir (sem eru 1440 mínútur, eða 86400 sekúndur), þótt einn snúningur jarðar sé í raun aðeins styttri. Nú er venja að líta svo til að sólarhringinn byrji klukkan 0:00:00 og endi einni sekúndu eftir klukkan 23:59:59, en þá er klukkan annað hvort 24:00:00 eða 0:00:00 og er sá tími kallaður miðnætti. Klukkur dagsins í dag miðast við s.k. meðalsóltíma, en ekki sannan sóltíma.
Dagur er sá hluti sólarhrings, sem varir frá sólarupprás til sólarlags, en nótt er frá sólarlagi til sólarupprásar.
[breyta] Heimild
- Almanaksskýringar (Þorsteinn Sæmundsson) (Sótt 8. apríl 2007)