30. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Okt – Nóvember – Des | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2007 Allir dagar |
30. nóvember er 334. dagur ársins (335. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 31 dagur er eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1612 - Sigur Breska Austur-Indíafélagsins yfir Portúgölum í orrustunni við Suvali við strendur Indlands markaði upphafið að endalokum einokunar Portúgala á verslum í Austur-Indíum.
- 1878 - Þjóðsöngur Ástralíu, Advance Australia Fair, var fyrst fluttur í Sidney.
- 1886 - Tvö skip frá Reykjavík fórust í ofsaveðri og þrettán drukknuðu.
- 1916 - Goðafoss strandaði í hríðarveðri við Straumnes fyrir norðan Aðalvík á Hornströndum. Skipið náðist ekki aftur á flot en mannbjörg varð. Skipið var ekki orðið tveggja ára er það strandaði.
- 1939 - Vetrarstríðið hófst með því að Sovétríkin gerðu innrás í Finnland.
- 1943 - Hitaveita kom til Reykjavíkur frá Reykjum í Mosfellssveit og var fyrst tengt í Listasafn Einars Jónssonar. Áður hafði verið leitt heitt vatn úr Laugardal og tengt húsum í bænum.
- 1960 - Ungmennafélagið Stjarnan var stofnað í Garðabæ.
- 1965 - Íslenskir bankar keyptu Skarðsbók á uppboði í London, en hún var þá eina forníslenska handritið í heiminum í einkaeigu. Handritastofnun fékk bókina til varðveislu.
- 1995 - Javier Solana var skipaður yfirmaður NATO.
- 2005 - Skurðlæknar í Frakklandi græddu nýtt andlit á manneskju í fyrsta sinn í sögunni.
- 2007 - Kárahnjúkavirkjun var gangsett við formlega athöfn.
[breyta] Fædd
- 1466 - Andrea Doria, ítalskur herforingi (d. 1560).
- 1667 - Jonathan Swift, enskur rithöfundur (d. 1745).
- 1699 - Kristján 6. Danakonungur (d. 1746).
- 1817 - Theodor Mommsen, þýskur fornfræðingur (d. 1903).
- 1835 - Mark Twain, bandarískur rithöfundur (d. 1910).
- 1874 - Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands (d. 1965).
[breyta] Dáin
- 1016 - Játmundur járnsíða, Englandskonungur (f. 989).
- 1603 - William Gilbert, enskur vísindamaður (f. 1544).
- 1900 - Oscar Wilde, írskt skáld (f. 1854).
- 1935 - Fernando Pessoa, portúgalskt ljóðskáld (f. 1888).
- 1986 - Emil Jónsson, forsætisráðherra Íslands (f. 1902).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |