8. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Okt – Nóvember – Des | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2007 Allir dagar |
8. nóvember er 312. dagur ársins (313. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 53 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1519 - Hernán Cortés og menn hans komu til Tenochtitlán í Mexíkó.
- 1520 - Aftökur hófust í Stokkhólmsvígunum.
- 1620 - Orrustan við Hvítafjall gerði út um uppreisn mótmælenda í Bæheimi í Þrjátíu ára stríðinu.
- 1658 - Svíar biðu ósigur fyrir Dönum í orrustunni um Eyrarsund.
- 1718 - Danska herskipið Gjötheborg strandaði skammt frá Þorlákshöfn með um 180 manns um borð. Af þeim tókst að bjarga um 170 manns og var það mesti mannfjöldi sem tekist hafði að bjarga í einu við Íslandsstrendur fram að því.
- 1879 - Hið íslenska fornleifafélag var stofnað.
- 1895 - Wilhelm Conrad Röntgen uppgötvaði röntgengeislana.
- 1923 - Knattspyrnufélag Reykjavíkur hóf að bjóða upp á æfingar í fimleikum í íþróttasal Barnaskóla Reykjavíkur.
- 1949 - Fyrstu umferðarljós voru tekin í notkun á fjórum gatnamótum í miðbæ Reykjavíkur.
- 1978 - Friðrik Ólafsson var kjörinn forseti Alþjóða skáksambandsins FIDE og gegndi þeirri stöðu í fjögur ár.
- 1979 - Hjördís Björk Hákonardóttir var skipuð sýslumaður í Strandasýslu, fyrst kvenna til að gegna slíku embætti á Íslandi.
- 1983 - Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-Rán, fórst í Jökulfjörðum og með henni fjórir menn.
- 2006 - Farið var að selja Windows Vista til fyrirtækja.
[breyta] Fædd
- 30 - Nerva, Rómarkeisari (d. 98).
- 1308 - Duns Scotus, skoskur heimspekingur (f. um 1266).
- 1622 - Karl 10. Gústaf, Svíakonungur.
- 1848 - Gottlob Frege, þýskur heimspekingur (d. 1925).
- 1946 - Roy Wood, Breskur tónlistarmaður (Electric Light Orchestra).
- 1954 - Kazuo Ishiguro, breskur rithöfundur.
[breyta] Dáin
- 1674 - John Milton, enskt skáld (f. 1608).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |