Þorlákshöfn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þorlákshöfn er bær í Sveitarfélaginu Ölfusi í Árnessýslu. Þar búa 1433 manns (1. desember 2005).
Í apríl 1937 keypti Kaupfélag Árnesinga með aðstoð Egils Thorarensens jörðina sem seinna var nefnd Þorlákshöfn af efnamönnum í Reykjavík. Þaðan voru síðan gerðir út nokkrir bátar til fiskveiða, áhugi komst með tíð og tíma á fyrir því að koma upp hafnaraðstöðu á þessu svæði. Til þess að það mætti gerast þurfti að selja land Þorlákshafnar til hins opinbera. Með rekstur á landinu fór Þorlákshafnarnefnd og komst það fljótlega á dagskrá hjá henni að stofna til útgerðarfélags.
Hagur Þorlákshafnar vænkaðist töluvert eftir að ákveðið var á fundi í Selfossbíói, þann 10. júní 1949 að stofna hlutafélagið Meitillinn h.f. með hlutafé frá sveitungum. Hafist var handa við útgerð á fimm vélbátum snemma næsta ár eftir að gengið hafði verið frá kaupum á þeim og 1951 voru 14 manns með skráða búsetu í Þorlákshöfn [1].
- Kristján frá Djúpalæk samdi ljóð sem heitir Þorlákshöfn