22. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Okt – Nóvember – Des | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2007 Allir dagar |
22. nóvember er 326. dagur ársins (327. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 39 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1357 - Nóvemberuppgjörið þar sem Eiríkur Magnússon fékk enn stærri hluta Svíþjóðar.
- 1617 - Akmeð 1. Tyrkjasoldán lést og bróðir hans Mústafa 1. tók við.
- 1888 - Mikið tjón varð vegna óveðurs og stórflóðs um suðvestanvert landið.
- 1907 - Í Reykjavík fengu giftar konur kosningarétt og kjörgengi til sveitarstjórnar og nýttu sér það nokkrum mánuðum síðar.
- 1907 - Vegalög voru staðfest og kváðu þau á um að vinstri umferð væri í gildi á Íslandi. Var sú ákvörðun tekin með tilliti til kvenna, sem riðu í söðli, en þær höfðu báða fætur á vinstri hlið hestsins og hentaði vinstri umferð því betur. Hægri umferð gekk í gildi 26. maí 1968.
- 1963 - John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, var myrtur í borginni Dallas í Texas.
- 1968 - Hvíta albúmið eða The Beatles kom út í Bretlandi.
- 1974 - Palestínumönnum var veitt áheyrnarstaða hjá Sameinuðu þjóðunum.
- 1979 - Í tilefni af ári barnsins sáu börn um meginhluta dagskrár Ríkisútvarpsins.
- 1986 - Fyrsti lottómiðinn var keyptur í Reykjavík af Steingrími Hermannssyni, þáverandi forsætisráðherra.
- 2005 - Angela Merkel var kjörin kanslari Þýskalands af þýska sambandsþinginu og varð fyrsta konan til að gegna því embætti. Hún tók við af Gerhard Schröder.
[breyta] Fædd
- 1787 - Rasmus Kristján Rask, danskur málfræðingur (d. 1832).
- 1890 - Charles de Gaulle, forseti Frakklands (d. 1970).
- 1913 - Benjamin Britten, breskt tónskáld (d. 1976).
- 1956 - Kjartan Bjargmundsson, íslenskur leikari.
- 1958 - Jamie Lee Curtis, bandarísk leikkona.
- 1963 - Ingvar Eggert Sigurðsson, íslenskur leikari.
- 1965 - Þórunn Sveinbjarnardóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1984 - Scarlett Johansson, bandarísk leikkona.
[breyta] Dáin
- 1617 - Akmeð 1. Tyrkjasoldán (f. 1590).
- 1963 - John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |