The Beatles (breiðskífa)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
The Beatles | |||||
Gerð | Breiðskífa | ||||
Flytjandi | Bítlarnir | ||||
Gefin út | 22. nóvember 1968 | ||||
Tekin upp | 30. maí - 14. október 1968 | ||||
Tónlistarstefna | Rokk | ||||
Lengd | 93:22 | ||||
---|---|---|---|---|---|
Útgáfufyrirtæki | Apple, Parlophone, EMI | ||||
Upptökustjórn | George Martin | ||||
Gagnrýni | |||||
All Music Guide: 5/5 tengill |
|||||
Tímaröð | |||||
|
The Beatles er níunda breiðskífa Bítlanna. Platan er tvöföld og var gefin út árið 1968. Platan er betur þekkt sem Hvíta albúmið á íslensku eða The White Album. Ástæða þeirrar nafngiftar er sú að á umslagi plötunnar er aðeins nafn hljómsveitarinnar á hvítum fleti.
Mörg laganna á plötunni voru samin á Indlandi í ferð sem Bítlarnir fóru ásamt fríðu föruneyti til að hitta Maharishi Mahesh Yogi og til að leggja stund á hugleiðslu. Á meðal þessara laga eru „Dear Prudence“, sem samið var um Prudence Farrow (systur Miu Farrow) sem fór til Indlands með Bítlunum, og „Sexy Sadie“, sem samið var um Maharishi Mahesh Yogi. John Lennon var höfundur beggja laganna.
Eitt þekktasta lagið á plötunni er „While My Guitar Gently Weeps“ eftir George Harrison. Í laginu spilar Eric Clapton á gítar.
Á meðal annarra laga á plötunni má nefna „Back in the U.S.S.R.“, sem er í anda Beach Boys, og „Ob-La-Di, Ob-La-Da“, samið í nokkurskonar Ska-stíl. Paul McCartney samdi bæði lögin. Einnig mætti nefna „Julia“, sem John Lennon samdi í minningu móður sinnar og „Don't Pass Me By“, sem er fyrsta bítlalagið sem Ringo Starr samdi.
„Hey Jude“ eftir Paul McCartney var samið á sama tíma og lögin á Hvíta albúminu, en var gefið út á smáskífu áður en platan kom út og ekki sett á hana.
Spenna var tekin að myndast á milli meðlima sveitarinnar á meðan upptökum plötunnar stóð, sem náði hámarki þegar Ringo Starr gekk út úr hljóðverinu og sagðist vera hættur í Bítlunum. Hann sneri þó aftur tveimur vikum síðar.
Efnisyfirlit |
[breyta] Lagalisti
Lennon/McCartney sömdu öll lögin, nema þar sem annað er tekið fram.
[breyta] Fyrri plata
[breyta] Hlið eitt
- „Back in the U.S.S.R.“ – 2:43
- „Dear Prudence“ – 3:56
- „Glass Onion“ – 2:17
- „Ob-La-Di, Ob-La-Da“ – 3:08
- „Wild Honey Pie" – 0:52
- „The Continuing Story of Bungalow Bill“ – 3:13
- „While My Guitar Gently Weeps“ (George Harrison) – 4:45
- „Happiness Is a Warm Gun“ – 2:43
[breyta] Hlið tvö
- „Martha My Dear“ – 2:28
- „I'm So Tired“ – 2:03
- „Blackbird“ – 2:18
- „Piggies“ (George Harrison) – 2:04
- „Rocky Raccoon“ – 3:32
- „Don't Pass Me By“ (Ringo Starr) – 3:50
- „Why Don't We Do It in the Road?“ – 1:40
- „I Will“ – 1:45
- „Julia“ – 2:54
[breyta] Seinni plata
[breyta] Hlið eitt
- „Birthday“ – 2:42
- „Yer Blues“ – 4:00
- „Mother Nature's Son“ – 2:47
- „Everybody's Got Something to Hide Except Me and My Monkey“ – 2:24
- „Sexy Sadie“ – 3:15
- „Helter Skelter“ – 4:29
- „Long, Long, Long“ (George Harrison) – 3:03
[breyta] Hlið tvö
- „Revolution 1“ – 4:15
- „Honey Pie“ – 2:40
- „Savoy Truffle“ (George Harrison) – 2:54
- „Cry Baby Cry“ – 3:02
- „Revolution 9“ – 8:21
- „Good Night“ – 3:11