Breiðskífa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Breiðskífa er notað um útgefna hljómplötu sem inniheldur stúdíóupptökur frá einum flytjanda. Breiðskífur eru oftast milli 25-80 mínútur og er lengd þeirra oft miðuð við 33⅓ snúninga 12 tommu vínylplötur (sem geta verið allt að 30 mín hvor hlið).
Breiðskífur eru stundum tvöfaldar og eru þær þá gefnar út á tveimur geisladiskum eða tveimur vínylplötum.
Hugtakið á sér enga formlega skilgreiningu og er lengd þeirra og lagafjöldi nokkuð fljótandi og hafa flytjendur nokkuð svigrúm til að ákvarða hvort þeir vilji kalla hljómplötur sínar breiðskífur eða eitthvað annað. Sjaldnast eru þó færri en 6 lög á breiðskífu.
Aðrar tegundir hljómplatna eru til að mynda stuttskífur, smáskífur, safndiskar, tónleikadiskar og deiliskífur.