1910
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 1. janúar - Metrakerfið innleitt á Íslandi.
- 20. febrúar - Boutros Gali, fyrsti innfæddi forsætisráðherra Egyptalands, myrtur.
- 6. maí - Georg 5. tekur við krúnunni í Bretlandi eftir lát föður síns, Játvarðs 7..
- 11. júní - Gasstöð Reykjavíkur tekur til starfa.
- 22. júlí - Zeppelin-loftfarið flýgur í fyrsta skiptið.
- 22. ágúst - Japan innlimar Kóreu.
- 5. september - Heilsuhælið á Vífilsstöðum opnað undir stjórn Sigurðar Magnússonar yfirlæknis.
- 5. október - Fyrsta lýðveldið stofnað í Portúgal. Emmanúel 2. konungur landsins flýr til Englands.
- Dagblaðið Vísir hefur göngu sína. Er það fyrsta eiginlega dagblaðið á Íslandi.
- Íþróttasamband Reykjavíkur stofnað.
[breyta] Fædd
- 29. október - Alfred Jules Ayer, breskur heimspekingur (d. 1989).
- 29. desember - Ronald Coase, bandarískur hagfræðingur og nóbelsverðlaunahafi.
[breyta] Dáin
- 28. janúar - Einar Baldvin Guðmundsson frá Hraunum, hreppstjóri, alþingismaður og dannebrogsmaður (f. 1841).
- 20. nóvember - Lev Tolstoj, rússneskur rithöfundur (f. 1829).
[breyta] Nóbelsverðlaunin
- Eðlisfræði - Johannes Diderik van der Waals
- Efnafræði - Otto Wallach
- Læknisfræði - Albrecht Kossel
- Bókmenntir - Paul Johann Ludwig Heyse
- Friðarverðlaun - Alþjóðafriðarskrifstofan