1989
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 20. janúar - George H. W. Bush tók við af Ronald Reagan sem forseti Bandaríkjanna.
- 14. febrúar - Ruholla Khomeini, leiðtogi Írans, hvatti múslima til að drepa Salman Rushdie fyrir skrif hans í bókinni Söngvar Satans.
- 14. febrúar - Hið fyrsta af 24 gervitunglum í GPS kerfinu sett á braut um Jörðu.
- 15. febrúar - Sovétríkin tilkynntu að allir þeirra hermenn hefðu yfirgefið Afganistan.
- 1. mars - Sala bjórs leyfð aftur á Íslandi.
- 18. mars - 4.400 ára gömul múmía fannst í Giza píramítanum í Egyptalandi.
- 24. mars - Exxon Valdez lak 240.000 tunnum af olíu nálægt Alaska.
- 7. apríl - Sovéski kafbáturinn Komsomolets sökk í Barentshafinu.
- 8. apríl - Fyrsta Bónus-verslunin opnaði.
- 3. júní - Jóhannes Páll páfi II kom í tveggja daga heimsókn til Íslands.
- 4. júní - Aðgerðir kínverska stjórnvalda til að brjóta á bak aftur mótmæli á Torgi hins himneska friðar urðu að blóðbaði.
- 23. ágúst - Íbúar Eistlands, Lettlands og Litháens mynduðu 600 km langa mennska keðju og kröfðust frelsis og sjálfstæðis.
- 9. nóvember - Berlínarmúrinn féll.
- 17. nóvember - Flauelsbyltingin byrjaði í Tékkóslóvakíu. Friðsamir mótmælendur voru grimmdarlega barðir niður af óeirðalögreglunni í Prag.
- 14. desember - Chile hélt sínar fyrstu frjálsu kosningar í 16 ár.
- 17. desember - Brasilía hélt sínar fyrstu frjálsu kosningar í 25 ár.
- 20. desember - Bandaríkin réðust inn í Panama.
- 22. desember - Ion Iliescu tók við sem forseti Rúmeníu.
- 25. desember - Nicolae Ceausescu og konan hans, Elena, voru tekin af lífi í Rúmeníu.
- 29. desember - Vaclav Havel settur forseti Tékkóslóvakíu. Þar með endaði flauelsbyltingin.
[breyta] Ódagsett
- Voyager 2 geimfarið uppgötvar nýja gerð af eldstöðvum á Tríton, lághitaeldstöð.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
- 23. janúar - Salvador Dalí, Listamaður
- 7. febrúar - Showa keisari í Japan.
- 27. júní - Alfred Jules Ayer, breskur heimspekingur (f. 1910).
[breyta] Nóbelsverðlaunin
- Eðlisfræði - Norman F. Ramsey, Hans G. Dehmelt, Wolfgang Paul
- Efnafræði - Sidney Altman, Thomas R Cech
- Læknisfræði - J Michael Bishop, Harold E Varmus
- Bókmenntir - Camilo José Cela
- Friðarverðlaun - Tenzin Gyatso, 14. Dalai Lama
- Hagfræði - Trygve Haavelmo