4. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
2007 Allir dagar |
4. júní er 155. dagur ársins (156. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 210 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 780 f.Kr. - Fyrsti sólmyrkvi sögunnar var skráður í Kína.
- 1794 - Breskar hersveitir náðu Port-au-Prince á Haítí á sitt vald.
- 1832 - Tíu Íslendingar voru skipaðir fulltrúar á þing Eydana, en það voru íbúar eyja, sem heyrðu undir Danmörku.
- 1896 - Henry Ford prufukeyrði fyrsta bílinn sem hann hannaði (þetta var jafnframt fyrsti bíllinn sem hann keyrði).
- 1917 - Fyrsta afhending Pulitzerverðlaunanna.
- 1919 - Kvenréttindi: Bandaríkjaþing samþykkti að breyta Stjórnarskrá Bandaríkjanna svo konur nytu kosningaréttar.
- 1926 - Robert Earl Hughes setti met sem þyngsti maður í heiminum.
- 1928 - Kínverski stríðsherran Zhang Zuolin var ráðinn af dögum af japönskum njósnurum.
- 1936 - Léon Blum varð forsætisráðherra Frakklands.
- 1944 - Hornsteinn var lagður að Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Skólinn var tekinn í notkun í október 1945.
- 1959 - Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, stofnuð.
- 1970 - Tonga hlaut sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1977 - Hornsteinn var lagður að Hrafnistu í Hafnarfirði.
- 1989 - Aðgerðir kínverska stjórnvalda til að brjóta á bak aftur mótmæli á Torgi hins himneska friðar enduðu með blóðbaði.
- 1992 - Elsta málverk sem boðið hefur verið upp á Íslandi var selt á uppboði í Reykjavík. Það er talið vera eftir séra Hjalta Þorsteinsson (1665 - 1750) og sýnir biskupshjónin Þórð Þorláksson og Guðríði Gísladóttur.
[breyta] Fædd
- 470 f.Kr. - Sókrates, grískur heimsspekingur (d. 399 f.Kr.).
- 1877 - Heinrich Wieland, þýskur lífefnafræðingur og verðlaunahafi efnafræðiverðlauna Nóbels (d. 1957).
- 1907 - Rosalind Russell, bandarísk leikkona (d. 1976).
- 1910 - Christopher Sydney Cockerell, breskur verkfræðingur og uppfinningamaður (d. 1999).
- 1940 - Bretar hörfuðu eftir ósigur í orrustunni um Dunkerque.
- 1947 - Viktor Klima, Kanslari Austurríkis.
- 1971 - Noah Wyle, bandarískur leikari.
- 1975 - Angelina Jolie, bandarísk leikkona.
- 1983 - Emmanuel Eboue, knattspyrnumaður frá Fílabeinsströndinni.
- 1994 - Hljómsveitin HAM hélt fræga lokatónleika á Tunglinu undir yfirskriftinni HAM lengi lifi.
[breyta] Dáin
- 1696 - Gísli Magnússon (Vísi-Gísli), sýslumaður í Rangárvallasýslu (f. 1621).
- 1922 - Hermann Alexander Diels, þýskur fornfræðingur (f. 1848).
- 1941 - Vilhjálmur 2. Þýskalandskeisari (f. 1859).
- 1942 - Reinhard Heydrich, nasisti (f. 1904).
- 2001 - Dipendra konungur Nepals (f. 1971).
- 2002 - Fernando Belaúnde Terry, Forseti Perú (f. 1912).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |