Hafnarfjörður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
1400 | |
Kjördæmi | Suðvesturkjördæmi |
Flatarmál – Samtals |
63. sæti 143 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
3. sæti 24.839 (2007) 173,7/km² |
Bæjarstjóri | Lúðvík Geirsson (S) |
Þéttbýliskjarnar | Hafnarfjörður |
Póstnúmer | 220, 221, 222 |
Vefsíða sveitarfélagsins |
Hafnarfjörður er bær á höfuðborgarsvæðinu. Þar bjuggu 24.839 manns 1. desember árið 2007 og hefur bærinn vaxið gríðarlega á síðustu árum og áratugum líkt og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa gert. Höfnin sem bærinn er kenndur við var ein stærsta verslunarhöfn landsins allt frá 16. öld og mikil útgerð hefur verið stunduð þaðan í sögunni. 29. febrúar 2008 náði íbúafjöldi Hafnarfjarðar upp í 25.000 manns, og gaf bæjarstjórinn Lúðvík Geirsson 25 þúsundasta hafnfirðinginum gjöf og heiðursskjal.
Hafnarfjörður heyrði undir Álftaneshrepp framan af en eftir skiptingu hans árið 1878 varð bærinn hluti hins nýmyndaða Garðahrepps. Hinn 1. júní 1908 fékk Hafnarfjörður kaupstaðarréttindi og varð þá að sjálfstæðu bæjarfélagi. Íbúar voru þá orðnir 1469 talsins.
Skammt sunnan Hafnarfjarðarbæjar er Straumsvík þar sem Alcan á Íslandi rekur álver. Þann 31. mars, árið 2007 fóru fram íbúakosningar um stækkun álversins í Hafnarfirði. Stækkunin var felld með aðeins 88 atkvæðum.
Fyrsta almenningsrafveitan á Íslandi var sett upp 12. desember 1904 í Hafnarfirði af Jóhannesi Reykdal, veitan liggur í gegnum Hamarskotslæk.
Efnisyfirlit |
[breyta] Bæjarstjórn
Kosningar til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fóru síðast fram 27. maí 2006.
Núverandi skipting bæjarfulltrúa Í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru ellefu bæjarfulltrúar, skipting fulltrúa er eftirfarandi kjörtímabilið 2006-2010, Samfylkingin hefur sjö bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn þrjá bæjarfulltrúa og Vinstri hreyfingin grænt framboð einn bæjarfulltrúa. Bæjarstjóri er Lúðvík Geirsson (Samfylkingu) og forseti bæjarstjórnar er Ellý Erlingsdóttir (Samfylkingu). Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið á landinu þar sem Samfylkingin hefur hreinan meirihluta.
[breyta] Skólar
Leikskólar: Arnarberg, Álfaberg, Álfasteinn, Garðavellir, Hlíðarberg, Hlíðarendi, Hvammur, Hörðuvellir, Kató, Norðurberg, Smáralundur, Stekkjarás, Tjarnarás, Vesturkot, Víðivellir.
Grunnskólar: Áslandsskóli, Engidalsskóli, Hraunvallaskóli, Hvaleyrarskóli, Lækjarskóli, Setbergsskóli, Víðistaðaskóli og Öldutúnsskóli.
Framhaldsskólar: Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Iðnskólinn í Hafnarfirði
[breyta] Íþróttafélög
Fimleikafélag Hafnarfjarðar, Golfklúbburinn Keilir, Siglingaklúbburinn Þytur
[breyta] Tenglar
Norðvesturkjördæmi
Akraneskaupstaður | Hvalfjarðarsveit | Skorradalshreppur | Borgarbyggð | Eyja- og Miklaholtshreppur | Snæfellsbær | Grundarfjarðarbær | Helgafellssveit | Stykkishólmsbær | Dalabyggð | Reykhólahreppur | Vesturbyggð | Tálknafjarðarhreppur | Bolungarvíkurkaupstaður | Ísafjarðarbær | Súðavíkurhreppur | Árneshreppur | Kaldrananeshreppur | Strandabyggð | Bæjarhreppur | Húnaþing vestra | Húnavatnshreppur | Blönduósbær | Höfðahreppur | Skagabyggð | Sveitarfélagið Skagafjörður | Akrahreppur
Norðausturkjördæmi
Fjallabyggð | Grímseyjarhreppur | Dalvíkurbyggð | Arnarneshreppur | Hörgárbyggð | Akureyrarkaupstaður | Eyjafjarðarsveit | Svalbarðsstrandarhreppur | Grýtubakkahreppur | Þingeyjarsveit | Skútustaðahreppur | Aðaldælahreppur | Norðurþing | Tjörneshreppur | Svalbarðshreppur | Langanesbyggð | Vopnafjarðarhreppur | Fljótsdalshérað | Fljótsdalshreppur | Borgarfjarðarhreppur | Seyðisfjarðarkaupstaður | Fjarðabyggð | Breiðdalshreppur | Djúpavogshreppur
Suðurkjördæmi
Sveitarfélagið Hornafjörður | Skaftárhreppur | Mýrdalshreppur | Rangárþing eystra | Rangárþing ytra | Ásahreppur | Vestmannaeyjabær | Flóahreppur | Sveitarfélagið Árborg | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Hrunamannahreppur | Bláskógabyggð | Grímsnes- og Grafningshreppur | Hveragerðisbær | Sveitarfélagið Ölfus | Grindavíkurkaupstaður | Sandgerðisbær | Sveitarfélagið Garður | Reykjanesbær | Sveitarfélagið Vogar
Suðvesturkjördæmi
Hafnarfjarðarkaupstaður | Garðabær | Sveitarfélagið Álftanes | Kópavogsbær | Seltjarnarneskaupstaður | Mosfellsbær | Kjósarhreppur
Reykjavíkurkjördæmi suður og Reykjavíkurkjördæmi norður
Reykjavík