Borgarbyggð
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
3609 | |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Flatarmál – Samtals |
6. sæti 4.926 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
16. sæti 3.742 (2007) 0,76/km² |
Bæjarstjóri | Páll S. Brynjarsson |
Þéttbýliskjarnar | Borgarnes (íb. 1.894) Bifröst (íb. 264) Hvanneyri (íb. 304) Kleppjárnsreykir (íb. 52) Reykholt (íb. 23) |
Póstnúmer | 310, 311, 320 |
Vefsíða sveitarfélagsins |
Borgarbyggð er sameinað sveitarfélag á Vesturlandi með nokkrum þéttbýliskjörnum; Borgarnesi, Bifröst og Varmalandi og er stærsta sveitarfélag á Íslandi, sem stendur við sjó, en byggir ekki afkomu sína að neinu leyti á sjávarútvegi.
Efnisyfirlit |
[breyta] Sameining
Sveitarfélagið varð til þegar Borgarnesbær, Hraunhreppur, Norðurárdalshreppur og Stafholtstungnahreppur sameinuðust í eitt sveitarfélag 11. júní 1994. Síðar, 7. júní 1998, sameinuðust Álftaneshreppur, Borgarhreppur og Þverárhlíðarhreppur Borgarbyggð.
23. apríl 2005 var svo kosið um sameiningu við Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhrepp, Kolbeinsstaðahrepp og Skorradalshrepp. Öll sveitarfélögin samþykktu sameiningu nema Skorradalshreppur, þar var kosið í annað sinn 4. júní sama ár og sameiningartillagan felld í annað sinn. Hin fjögur sveitarfélögin sameinuðust þó og tók sú sameining gildi 10. júní í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna 2006.
[breyta] Staðsetning
Borgarbyggð nær allt yfir alla Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar að Skorradalshreppi undanskildum, það er að segja frá frá norðanverðum Skarðsheiði í suðri, að Eyja- og Miklaholtshreppi í norðri og að Holtavörðuheiði í austri.
[breyta] Atvinnuvegir
Aðalatvinnuvegir Borgarbyggðar eru landbúnaður, þjónusta og iðnaður, (bygginga, málm og matvælaiðnaður). Meirihluti atvinnustarfsemi Borgarbyggðar fyrir utan landbúnað fer fram í Borgarnesi.
[breyta] Menntun
Í Borgarbyggð eru tveir grunnskólar; Grunnskólinn í Borgarnesi og Grunnskólinn á Varmalandi og fjórir leikskólar (fimm með útibúi Klettaborgar í Bjargslandi, Borgarnesi), Klettaborg í Borgarnesi, Hraunborg á Bifröst, Andabær á Hvanneyri og Leikskólinn Varmalandi. Auk þess eru tveir háskólar í sveitarfélaginu, Háskólinn á Bifröst (áður Viðskiptaháskólinn og þar áður Samvinnuháskólinn Samvinnuskólinn) og Landbúnaðarháskóli Íslands (áður Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og þar áður Bændaskólinn á Hvanneyri). Borgarbyggð á aðild að Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi.
Norðvesturkjördæmi
Akraneskaupstaður | Hvalfjarðarsveit | Skorradalshreppur | Borgarbyggð | Eyja- og Miklaholtshreppur | Snæfellsbær | Grundarfjarðarbær | Helgafellssveit | Stykkishólmsbær | Dalabyggð | Reykhólahreppur | Vesturbyggð | Tálknafjarðarhreppur | Bolungarvíkurkaupstaður | Ísafjarðarbær | Súðavíkurhreppur | Árneshreppur | Kaldrananeshreppur | Strandabyggð | Bæjarhreppur | Húnaþing vestra | Húnavatnshreppur | Blönduósbær | Höfðahreppur | Skagabyggð | Sveitarfélagið Skagafjörður | Akrahreppur
Norðausturkjördæmi
Fjallabyggð | Grímseyjarhreppur | Dalvíkurbyggð | Arnarneshreppur | Hörgárbyggð | Akureyrarkaupstaður | Eyjafjarðarsveit | Svalbarðsstrandarhreppur | Grýtubakkahreppur | Þingeyjarsveit | Skútustaðahreppur | Aðaldælahreppur | Norðurþing | Tjörneshreppur | Svalbarðshreppur | Langanesbyggð | Vopnafjarðarhreppur | Fljótsdalshérað | Fljótsdalshreppur | Borgarfjarðarhreppur | Seyðisfjarðarkaupstaður | Fjarðabyggð | Breiðdalshreppur | Djúpavogshreppur
Suðurkjördæmi
Sveitarfélagið Hornafjörður | Skaftárhreppur | Mýrdalshreppur | Rangárþing eystra | Rangárþing ytra | Ásahreppur | Vestmannaeyjabær | Flóahreppur | Sveitarfélagið Árborg | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Hrunamannahreppur | Bláskógabyggð | Grímsnes- og Grafningshreppur | Hveragerðisbær | Sveitarfélagið Ölfus | Grindavíkurkaupstaður | Sandgerðisbær | Sveitarfélagið Garður | Reykjanesbær | Sveitarfélagið Vogar
Suðvesturkjördæmi
Hafnarfjarðarkaupstaður | Garðabær | Sveitarfélagið Álftanes | Kópavogsbær | Seltjarnarneskaupstaður | Mosfellsbær | Kjósarhreppur
Reykjavíkurkjördæmi suður og Reykjavíkurkjördæmi norður
Reykjavík