Borgarfjarðarhreppur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
7509 | |
Kjördæmi | Norðausturkjördæmi |
Flatarmál – Samtals |
43. sæti 441 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
69. sæti 146 (2007) 0,33/km² |
Sveitarstjóri | Steinn Eiríksson |
Þéttbýliskjarnar | Borgarfjörður eystri (íb. 101) |
Póstnúmer | 720 |
Borgarfjarðarhreppur er sveitarfélag á Austurlandi, hið nyrsta á Austfjörðum. Það dregur nafn sitt af Borgarfirði eystra, en nær auk þess yfir Njarðvík og Víkur, þ.e., Brúnavík, Breiðuvík og Húsavík, auk Loðmundarfjarðar, sem bættist við 1. janúar 1973 þegar Loðmundarfjarðarhreppur var sameinaður Borgarfjarðarhreppi.
Vegurinn til Borgarfjarðar liggur um Vatnsskarð til Njarðvíkur, og þaðan um Njarðvíkurskriður til Borgarfjarðar. Í skriðunum hefur öldum saman verið trékross, ferðamönnum til halds og trausts.
Eitt þekktasta kennileiti í sveitarfélaginu eru Dyrfjöll á vesturmörkum þess.
[breyta] Bakkagerði
Eilítið þorp er í Borgarfirði. Það heitir Bakkagerði, en er í daglegu tali kallað Borgarfjörður. Þar búa um 100 manns.
Skammt innan við þorpið er Álfaborgin, sem samkvæmt þjóðsögum er bústaður huldufólks.
Listmálarinn kunni, Jóhannes Sveinsson Kjarval, ólst upp í Geitavík í Borgarfirði. Síðar málaði hann mikið á þessum slóðum. Í kirkjunni í Bakkagerði er altaristafla eftir hann. Hún sýnir Jesú flytja fjallræðuna. Hann stendur á Álfaborginni og má meðal áheyrenda þekkja gamla Borgfirðinga.
Í Bakkagerði er iðnfyrirtækið Álfastein, sem framleiðir skraut og nytjahluti úr íslensku grjóti.
Óvíða er fjölbreyttara náttúrufar en í Borgarfirði og nágrenni, og er svæðið vinsælt göngusvæði á sumrin.
Vegalengd til Reykjavíkur er 725 km og til Egilsstaða 71 km.
[breyta] Tenglar
Norðvesturkjördæmi
Akraneskaupstaður | Hvalfjarðarsveit | Skorradalshreppur | Borgarbyggð | Eyja- og Miklaholtshreppur | Snæfellsbær | Grundarfjarðarbær | Helgafellssveit | Stykkishólmsbær | Dalabyggð | Reykhólahreppur | Vesturbyggð | Tálknafjarðarhreppur | Bolungarvíkurkaupstaður | Ísafjarðarbær | Súðavíkurhreppur | Árneshreppur | Kaldrananeshreppur | Strandabyggð | Bæjarhreppur | Húnaþing vestra | Húnavatnshreppur | Blönduósbær | Höfðahreppur | Skagabyggð | Sveitarfélagið Skagafjörður | Akrahreppur
Norðausturkjördæmi
Fjallabyggð | Grímseyjarhreppur | Dalvíkurbyggð | Arnarneshreppur | Hörgárbyggð | Akureyrarkaupstaður | Eyjafjarðarsveit | Svalbarðsstrandarhreppur | Grýtubakkahreppur | Þingeyjarsveit | Skútustaðahreppur | Aðaldælahreppur | Norðurþing | Tjörneshreppur | Svalbarðshreppur | Langanesbyggð | Vopnafjarðarhreppur | Fljótsdalshérað | Fljótsdalshreppur | Borgarfjarðarhreppur | Seyðisfjarðarkaupstaður | Fjarðabyggð | Breiðdalshreppur | Djúpavogshreppur
Suðurkjördæmi
Sveitarfélagið Hornafjörður | Skaftárhreppur | Mýrdalshreppur | Rangárþing eystra | Rangárþing ytra | Ásahreppur | Vestmannaeyjabær | Flóahreppur | Sveitarfélagið Árborg | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Hrunamannahreppur | Bláskógabyggð | Grímsnes- og Grafningshreppur | Hveragerðisbær | Sveitarfélagið Ölfus | Grindavíkurkaupstaður | Sandgerðisbær | Sveitarfélagið Garður | Reykjanesbær | Sveitarfélagið Vogar
Suðvesturkjördæmi
Hafnarfjarðarkaupstaður | Garðabær | Sveitarfélagið Álftanes | Kópavogsbær | Seltjarnarneskaupstaður | Mosfellsbær | Kjósarhreppur
Reykjavíkurkjördæmi suður og Reykjavíkurkjördæmi norður
Reykjavík