Norðvesturkjördæmi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þingmenn -kjördæmakjörnir -jöfnunarmenn |
9 8 1 |
|
Mannfjöldi Vesturland Vestfirðir Norðurland vestra |
30.120 15.452 7.309 7.359 |
|
Sveitarfélög | 27 | |
Kosningar | 2003 | 2007 |
Kjósendur á kjörskrá | 21.221 | 21.126 |
Fjöldi á bakvið hvert þingsæti | 2.150 | 2.347 |
Kjörsókn | 89,3% | 86% |
Norðvesturkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það er fámennasta kjördæmið og hefur 9 sæti á Alþingi, þar af eitt jöfnunarsæti. Kjördæmið varð til þegar fyrrverandi kjördæmin Vesturland, Vestfirðir og Norðurland vestra voru sameinuð með nýrri kjördæmaskipan árið 2000 með þeirri undantekningu að Siglufjörður sem áður tilheyrði Norðurlandi vestra tilheyrir nú Norðausturkjördæmi. Fyrst var kosið samkvæmt nýrri kjördæmaskipan í Alþingiskosningum 2003.
Upphaflega var fjöldi þingsæta í kjördæminu ákveðinn 10 sæti en fjöldi á kjörskrá á bak við hvern þingmann var aðeins 2.150 í kosningunum 2003 sem var meira en helmingi minna en í Suðvesturkjördæmi þar sem sami fjöldi var 4.440. Fluttist því eitt þingsæti frá Norðvesturkjördæmi til Suðvesturkjördæmis fyrir Alþingiskosningarnar 2007 í samræmi við ákvæði í kosningalögunum.
[breyta] Sveitarfélög
Eftirfarandi sveitarfélög eru í Norðvesturkjördæmi: Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Dalabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Bæjarhreppur, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Höfðahreppur, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.
[breyta] Skipting þingsæta og þingmenn
Þing | 1. þingm. | Fl. | 2. þingm. | Fl. | 3. þingm. | Fl. | 4. þingm. | Fl. | 5. þingm. | Fl. | 6. þingm. | Fl. | 7. þingm. | Fl. | 8. þingm. | Fl. | 9. þingm. | Fl. | 10. þingm. | Fl. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
129. | Sturla Böðvarsson | D | Jóhann Ársælsson | S | Magnús Stefánsson | B | Einar K. Guðfinnsson | D | Guðjón A. Kristjánsson | F | Anna Kristín Gunnarsdóttir | S | Kristinn H. Gunnarsson | B | Jón Bjarnason | V | Einar Oddur Kristjánsson | D | Sigurjón Þórðarson | F |
130. | ||||||||||||||||||||
131. | ||||||||||||||||||||
132. | ||||||||||||||||||||
133. | ||||||||||||||||||||
134. | Guðbjartur Hannesson | Jón Bjarnason | V | Einar K. Guðfinnsson | D | Guðjón A. Kristjánsson | F | Karl V. Matthíasson | S | Einar Oddur Kristjánsson | D | Kristinn H. Gunnarsson | F | |||||||
135. | Herdís Þórðardóttir |
[breyta] Tengill
Frá 2003:
Reykjavíkurkjördæmi norður · Reykjavíkurkjördæmi suður · Norðvesturkjördæmi · Norðausturkjördæmi · Suðurkjördæmi · Suðvesturkjördæmi
1959-2003:
Reykjavík · Reykjanes · Vesturland · Vestfirðir · Norðurland vestra · Norðurland eystra · Austurland · Suðurland
1844-1959:
Akureyri · Austur-Húnavatnssýsla · Austur-Skaftafellssýsla · Árnessýsla · Barðastrandarsýsla · Borgarfjarðarsýsla · Dalasýsla · Eyjafjarðarsýsla · Gullbringu- og Kjósarsýsla · Hafnarfjörður · Húnavatnssýsla · Ísafjörður · Ísafjarðarsýsla · Mýrasýsla · Norður-Ísafjarðarsýsla · Norður-Múlasýsla · Norður-Þingeyjarsýsla · Rangárvallasýsla · Reykjavík · Skaftafellssýsla · Seyðisfjörður · Siglufjörður · Skagafjarðarsýsla · Suður-Múlasýsla · Snæfellsnessýsla · Strandasýsla · Suður-Þingeyjarsýsla · Vestur-Húnavatnssýsla · Vestur-Ísafjarðarsýsla · Vestmannaeyjar · Vestur-Skaftafellssýsla · Þingeyjarsýsla