Sturla Böðvarsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sturla Böðvarsson (StB) | |
Fæðingardagur: | 23. nóvember 1945 (62 ára) |
Fæðingarstaður: | Ólafsvík |
1. þingmaður Norðvesturkjördæmis | |
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
1991-2003 | í Vesturl. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2003- | í Norðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1999-2007 | Samgönguráðherra |
1991-1992 & 1995-1999 | 2. varaforseti Alþingis |
1992-1995 | 4. varaforseti Alþingis |
2007- | Forseti Alþingis |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Sturla Böðvarsson (f. í Ólafsvík á Snæfellsnesi 23. nóvember 1945), er forseti Alþingis og þingmaður Norðvesturkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann hefur setið á Alþingi síðan 1991 og verið forseti Alþingis frá 2007. Sturla var samgönguráðherra 1999 til 2007.
Sturla er giftur Hallgerði Gunnarsdóttur lögfræðingi og eiga þau fimm börn saman. Sturla hefur setið í fjölda stjórna og nefnda á ferli sínum.
Foreldrar Sturlu voru Böðvar Bjarnason, byggingameistari í Ólafsvík og Elínborg Ágústsdóttir, húsmóðir. Sturla gekk í Skógaskóla og að grunnnámi loknu, 1961 nam hann húsasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík þaðan sem hann útskrifaðist með sveinspróf 1966. Sturla lauk raungreinaprófi við Tækniskóla Íslands árið 1970 og loks B.Sc.-próf í byggingatæknifræði við sama skóla 1973.
Sturla var sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri í Stykkishólmi árin 1974-1991. Sturla hefur verið ritstjóri Snæfells, blaðs sjálfstæðismanna á Vesturlandi síðan 1983.
Fyrirrennari: Halldór Blöndal |
|
Eftirmaður: Kristján L. Möller |
|||
Fyrirrennari: Sólveig Pétursdóttir |
|
Eftirmaður: enn í embætti |