Kristinn H. Gunnarsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kristinn H. Gunnarsson (KHG) | |
Fæðingardagur: | 19. ágúst 1952 (55 ára) |
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
9. þingmaður Norðvesturkjördæmis | |
Flokkur: | Frjálslyndi flokkurinn |
Nefndir: | Félags- og tryggingamálanefnd, utanríkismálanefnd og Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins |
Þingsetutímabil | |
1991-1998 | í Vestf. fyrir Alþb. |
1998 | í Vestf. fyrir Ufl. |
1998-2003 | í Vestf. fyrir Framsfl. ✽ |
2003-2007 | í Norðvest. fyrir Framsfl. ✽ |
2007- | í Norðvest. fyrir Frjálsl. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1998-1999 | Formaður sjávarútvegsnefndar |
2003-2004 | Formaður iðnaðarnefndar |
1999-2003 | Þingflokksformaður (Framsfl.) |
2007- | Þingflokksformaður (Frjálsl.) |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Kristinn H(alldór) Gunnarsson (f. 19. ágúst 1952 í Reykjavík) er þingmaður fyrir Frjálslynda flokkinn í Norðvesturkjördæmi.
Kristinn hóf feril sinn í stjórnmálum hjá Alþýðubandalaginu en hann var bæjarfulltrúi fyrir flokkinn í bæjarstjórn Bolungarvíkur á árunum 1982-1998. 1991 náði hann kjöri á Alþingi í Vestfjarðakjördæmi. 1998 sagði hann skilið við Alþýðubandalagið, gekk í Framsóknarflokkinn og náði kjöri fyrir hann í kosningunum 1999. Síðan 2003 hefur Kristinn verið þingmaður Norðvesturkjördæmis. Samstarf Kristins og þingflokks Framsóknarflokksins var oft örðugt en hann lét gjarnan í ljós aðrar skoðanir á málum eins og fjölmiðlamálinu og Íraksmálinu en aðrir þingmenn flokksins. Í september 2004 ákvað þingflokkurinn að Kristinn myndi ekki sitja í neinum nefndum fyrir flokkinn vegna „trúnaðarbrests“ milli flokksins og hans.[1] Á þingflokksfundi í maí 2005 var það þó samþykkt að Kristinn tæki sæti í tveimur nefndum. Í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2007 bauð Kristinn sig fram í fyrsta sæti listans gegn Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráðherra en beið lægri hlut og lenti raunar í þriðja sæti. Skömmu síðar gekk hann til liðs við Frjálslynda flokkinn og tók annað sætið á lista frjálslyndra í norðvestri á eftir formanninum Guðjóni Arnari Kristjánssyni. Í kosningunum 2007 náði hann svo kjöri fyrir þriðja stjórnmálaaflið á sínum þingmannsferli.
[breyta] Heimild
- ↑ mbl.is - Trúnaður milli Kristins H. Gunnarssonar og þingflokks Framsóknar „brostinn“ (28. september 2004). Skoðað 21. maí, 2007.