Norðausturkjördæmi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þingmenn -kjördæmakjörnir -jöfnunarmenn |
10 9 1 |
|
Mannfjöldi Eyjafjörður Þingeyjarsýslur Austurland |
42.147 23.583 5.066 13.498 |
|
Sveitarfélög | 24 | |
Kosningar | 2003 | 2007 |
Kjósendur á kjörskrá | 27.298 | 27.888 |
Fjöldi á bakvið hvert þingsæti | 2.730 | 2.789 |
Kjörsókn | 87,5% | 84,8% |
Norðausturkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það hefur 10 sæti á Alþingi, þar af 1 jöfnunarsæti. Kjördæmið var sameinað úr kjördæmunum Norðurlandi eystra og Austurlandi með þeim undantekningum að Siglufjörður sem áður tilheyrði Norðurlandi vestra er í Norðausturkjördæmi en Hornafjörður sem áður var í Austurlandskjördæmi tilheyrir nú Suðurkjördæmi. Kjördæmið var búið til með nýrri kjördæmaskipan árið 2000. Fyrst var kosið samkvæmt nýrri kjördæmaskipan í Alþingiskosningum 2003.
Í báðum þingkosningunum sem fram hafa farið eftir að nýja kjördæmaskipunin var tekin upp hafa úrslitin í Norðausturkjördæmi einkennst af meiri jöfnuði á milli flokka en tíðkast í öðrum kjördæmum, það er sterkasta vígi bæði Framsóknarflokksins og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á meðan bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin hafa verið veikari þar en á landsvísu. Frjálslyndi flokkurinn hefur aldrei átt þingmann í kjördæminu né í forverum þess.
Kjördæmið hefur sem áður segir verið talið eitt höfuðvígi Framsóknarflokksins sem hefur nær alltaf átt fyrsta þingmann kjördæmisins (og þar áður á Norðurlandi eystra og Austurlandi) og ef ekki þann fyrsta þá annan og stundum báða. Vinstri græn hafa frá stofnun flokksins 1999 einnig fengið mest fylgi í Norðausturkjördæmi (og þar áður á Norðurlandi eystra) en það er heimakjördæmi formanns flokksins, Steingríms J. Sigfússonar.
[breyta] Sveitarfélög
Í Norðausturkjördæmi eru sveitarfélögin: Fjallabyggð, Grímseyjarhreppur, Dalvíkurbyggð, Arnarneshreppur, Hörgárbyggð, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Aðaldælahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur.
[breyta] Skipting þingsæta og þingmenn
Þing | 1. þingm. | Fl. | 2. þingm. | Fl. | 3. þingm. | Fl. | 4. þingm. | Fl. | 5. þingm. | Fl. | 6. þingm. | Fl. | 7. þingm. | Fl. | 8. þingm. | Fl. | 9. þingm. | Fl. | 10. þingm. | Fl. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
129. | Valgerður Sverrisdóttir | B | Halldór Blöndal | D | Kristján L. Möller | S | Jón Kristjánsson | B | Steingrímur J. Sigfússon | V | Tómas Ingi Olrich* | D | Einar Már Sigurðarson | S | Dagný Jónsdóttir | B | Birkir Jón Jónsson | B | Þuríður Backman | V |
130. | ||||||||||||||||||||
131. | Arnbjörg Sveinsdóttir* | |||||||||||||||||||
132. | ||||||||||||||||||||
133. | ||||||||||||||||||||
134. | Kristján Þór Júlíusson | D | Valgerður Sverrisdóttir | B | Steingrímur J. Sigfússon | V | Arnbjörg Sveinsdóttir | D | Birkir Jón Jónsson | B | Þuríður Backman | V | Ólöf Nordal | D | Höskuldur Þór Þórhallsson | B |
[breyta] Tengill
Frá 2003:
Reykjavíkurkjördæmi norður · Reykjavíkurkjördæmi suður · Norðvesturkjördæmi · Norðausturkjördæmi · Suðurkjördæmi · Suðvesturkjördæmi
1959-2003:
Reykjavík · Reykjanes · Vesturland · Vestfirðir · Norðurland vestra · Norðurland eystra · Austurland · Suðurland
1844-1959:
Akureyri · Austur-Húnavatnssýsla · Austur-Skaftafellssýsla · Árnessýsla · Barðastrandarsýsla · Borgarfjarðarsýsla · Dalasýsla · Eyjafjarðarsýsla · Gullbringu- og Kjósarsýsla · Hafnarfjörður · Húnavatnssýsla · Ísafjörður · Ísafjarðarsýsla · Mýrasýsla · Norður-Ísafjarðarsýsla · Norður-Múlasýsla · Norður-Þingeyjarsýsla · Rangárvallasýsla · Reykjavík · Skaftafellssýsla · Seyðisfjörður · Siglufjörður · Skagafjarðarsýsla · Suður-Múlasýsla · Snæfellsnessýsla · Strandasýsla · Suður-Þingeyjarsýsla · Vestur-Húnavatnssýsla · Vestur-Ísafjarðarsýsla · Vestmannaeyjar · Vestur-Skaftafellssýsla · Þingeyjarsýsla