Háskólinn á Bifröst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stofnaður: | 1918 |
Gerð: | Sjálfseignarstofnun |
Rektor: | Ágúst Einarsson |
Nemendafjöldi: | 1100 |
Staðsetning: | Bifröst, Ísland |
Vefsíða |
Háskólinn á Bifröst er íslenskur háskóli staðsettur í Norðurárdal í Borgarbyggð, inn af Borgarfirði. Í kringum skólann hefur myndast lítið þorp, Bifröst, þar sem búa um 700 manns.
Skólinn var stofnaður árið 1918 undir nafninu Samvinnuskólinn og var þá staðsettur í Reykjavík. Skólinn var rekinn af Sambandi íslenskra samvinnufélaga og var ætlaður fyrir meðlimi samvinnuhreyfingarinnar. Fyrsti skólastjórinn var Jónas Jónsson frá Hriflu. Hann var mótaður eftir fyrirmynd Ruskin College, Oxford í Englandi, þar sem Jónas hafði sjálfur numið. Skólinn flutti árið 1955 í land Hreðarvatns í Norðurárdalnum. Það var svo árið 1988 að skólinn var gerður formlega að skóla á háskólastigi. Skólinn hefur gengið í gegnum nokkrar nafnabreytingar, en hann hefur, auk fyrsta nafnsins (Samvinnuskólinn) og þess núverandi (Háskólinn á Bifröst) heitið Samvinnuháskólinn og Viðskiptaháskólinn á Bifröst. Skólinn hefur verið sjálfseignarstofnun síðan árið 1990 en fyrir það var hann deild innan SÍS.
Rektor er Ágúst Einarsson, en hann tók við embætti í janúar 2007 í kjölfar skyndilegrar uppsagnar fyrri rektors, Runólfs Ágústssonar. Við skólann stunda rúmlega 1100 manns nám og býr um fjórðungur þeirra á stúdentagörðum í þorpinu. Skólanum er skipt upp í þrjár deildir, félagsvísindadeild, lagadeild og viðskiptadeild. Þar að auki er til staðar frumgreinadeild, sem er hugsuð sem undurbúningur undir nám í grunndeildum háskólans. Skólinn útskrifar nemendur með eftirtaldar gráður: BS, BA, MS, MA og ML.
Íslenskir háskólar |
---|
Háskóli Íslands | Háskólinn á Akureyri | Háskólinn á Bifröst | Háskólinn í Reykjavík | Hólaskóli | Kennaraháskóli Íslands | Landbúnaðarháskóli Íslands | Listaháskóli Íslands |