Hvanneyri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hvanneyri er þéttbýlisstaður í Andakíl í Borgarbyggð. Hvanneyri er talin vera landnámsjörð Egils Skallagrímssonar og var þar lengi stórbýli. Árið 1889 var þar stofnaður bændaskóli og staðurinn byggðist upp í kjölfarið. Í dag er á staðnum Landbúnaðarháskóli Íslands, sem líka er á Reykjum í Ölfusi, Möðruvöllum í Hörgárdal og Keldnaholti í Reykjavík.
Íbúðarhús staðarins eru dreifð um svæðið sem og nemendagarðar, heimavist og skólahús sem tilheyra Landbúnaðarháskólanum. Hús Hvanna er vestarlega og hýsir það ýmis fyrirtæki, s.s. Búnaðarsamband Vesturlands, Vesturlandsskóga, Landssamband kúabænda og önnur landbúnaðartengd fyrirtæki. Að auki er þar að finna Andakílsskóla og leikskólann Andabæ. Við skólann er að finna stóran knattspyrnuvöll og sparkvöll.
Á Hvanneyri höfðu 303 lögheimili þann 1. desember 2007 en mun fleiri búa á staðnum og stunda þar nám í framhaldsskóla- og háskóladeildum Landbúnaðarháskólans.