Skóli
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skóli er stofnun þar sem ungum sem öldnum eru kenndar ýmsar fræðigreinar af kennurum, en það er mismunandi eftir skólastigi og tegund skóla hvað er kennt og á hvaða erfiðleikastigi. Á sumum skólastigum er mætingaskylda, svo nemendur þurfa að mæta á réttum tíma. Orðið skóli er einnig haft um ákveðan stefnu í listum, t.d. vínarskólinn.
[breyta] Saga skólastofnanna á Íslandi
Fyrsti skólinn hér á landi er talinn hafa verið á Bæ í Borgarfirði. Rúðólfur biskup sem var hér á landi í 20 ár hélt þar uppi skóla, og var Sigfús Loðmundarson, faðir Sæmdundar fróða, einn af nemendum hans. Skólinn lagðist þó niður þegar Rúðólfur biskup fór af landi brott, en héðan fluttist Rúdólfur árið 1050 og hélt þá til Englands og gerðist ábóti í Abington. Sagt er að Sæmundur hafi fyrstur Íslendinga stundað nám í Frakklandi, og er líklegt að það hafi verið fyrir áeggjan Rúðólfs biskups.
Næst stofnaði Ísleifur biskup skóla í Skálholti og Teitur sonur hans stofnaði síðan skóla í Haukadal, þar sem Ari fróði var við nám. Síðan koma skólarnir á Hólum og Odda, sem þeir stofnuðu vinirnir Jón Ögmundsson biskup og Sæmundur fróði. Ekki er gott að segja hvor skólinn er eldri, en sennilega er það skólinn í Odda. Um hann er lítið vitað, en talið er víst að þar hafi verið kennd þjóðleg fræði auk annars og margt fært í letur. Til dæmis um það hvert álit skólinn hafði á sér, er sagt frá því í sögu Þorláks biskups helga, að móðir hans hafi sett hann í skólann í Odda, sem þá hefði verið fremsti skóli hér á landi.