21. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
2007 Allir dagar |
21. júní er 172. dagur ársins (173. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 193 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1809 - Jörundur hundadagakonungur og Samuel Phelps komu til Reykjavíkur á skipinu Margaret & Anne.
- 1926 - Jón Helgason biskup fékk að gjöf gullkross með keðju frá prestum landsins, en hann varð sextugur þennan dag. Krossinn skyldi vera embættistákn og ganga til eftirmanna hans á biskupsstóli.
- 1940 - Síðari heimsstyrjöldin: Frakkar gáfust upp fyrir Þjóðverjum.
- 1942 - Síðari heimsstyrjöldin: Þjóðverjar sigruðu í orrustunni um Tobruk í Líbýu og hertóku borgina.
- 1959 - Sigurbjörn Einarsson guðfræðiprófessor var vígður til biskups yfir Íslandi og gegndi hann því embætti til 1981.
- 1966 - Um 140 lögregluþjónar skemmtu Reykvíkingum með söng af tröppum Menntaskólans í Reykjavík, en haldið var mót norrænna lögreglukóra.
- 1973 - Stofnaður var þjóðgarður í Jökulsárgljúfrum frá Dettifossi og niður fyrir Ásbyrgi. Þjóðgarðurinn er um 150 ferkílómetrar að stærð.
- 1980 - Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Óðal feðranna, var frumsýnd.
- 1986 - Íþróttamiðstöðin í Laugardal í Reykjavík var tekin í notkun og við það tækifæri var afhjúpuð stytta af Gísla Halldórssyni fyrrum forseta ÍSÍ.
- 1991 - Perlan í Öskjuhlíð var vígð.
[breyta] Fædd
- 356 f.Kr. - Alexander mikli
- 1663 - Björn Þorleifsson biskup á Hólum.
- 1905 - Jean-Paul Sartre, heimspekingur, rithöfundur og nóbelsverðlaunahafi 1964 (d. 1980)
- 1925 - Giovanni Spadolini, ítalskur stjórnmálamaður (d. 1994).
- 1944 - Ray Davies, söngvari í bresku hljómsveitinni The Kinks.
- 1956 - Michel Platini, franskur knattspyrnumaður.
- 1973 - Juliette Lewis, bandarísk leikkona.
- 1982 - Vilhjálmur Bretaprins (sonur Karls Bretaprins og eiginkonu hans Díönu).
[breyta] Dáin
- 1377 - Játvarður 3., Englandskonungur.
- 1527 - Niccolò Machiavelli, ítalskur heimspekingur, rithöfundur og stjórnmálamaður (f. 1469).
- 1908 - Nikolaí Rimskí-Korsakov, tónskáld (b. 1844)
- 2001 - John Lee Hooker, blústónlistarmaður, lést 83 ára gamall.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |