14. desember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nóv – Desember – Jan | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2007 Allir dagar |
14. desember er 348. dagur ársins (349. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 17 dagar eru eftir af árinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 867 - Hadríanus 2. varð páfi.
- 1287 - Grandi milli Norðursjávar og grunns stöðuvatns í Hollandi gaf sig og olli fimmta stærsta flóði sögunnar. 50.000 manns létu lífið en flóðið braut líka hafinu leið að Amsterdam sem eftir það gat þróast sem hafnarborg.
- 1542 - María Stúart varð drottning Skotlands.
- 1890 - Eyrarbakkakirkja var vígð. Altaristafla hennar er eftir Lovísu Danadrottningu, máluð árið 1891.
- 1908 - Togarinn Coot, sem var fyrsti togari keyptur til Íslands, strandaði við Keilisnes. Coot var á leiðinni til Hafnarfjarðar, og hafði í togi skútuna Kópanes sem átti að fara í vetrarlægi í Hafnarfirði. Á utanverðum Hafnarfirði slitnaði tógið og festist í skrúfu Coots. Bæði skipin rak stjórnlaust undan veðri og straumi þar til þau strönduðu við Keilisnes. Þar með lauk sögu fyrsta togarans.
- 1910 - Vísir til dagblaðs í Reykjavík hóf göngu sína. Vísir og Dagblaðið sameinuðust í DV 26. nóvember 1981.
- 1911 - Roald Amundsen kom á suðurpólinn.
- 1934 - Golfklúbbur Reykjavíkur var stofnaður og hét þá „Golfklúbbur Íslands“.
- 1935 - Um mestallt Ísland geysaði fárviðri og varð mikið manntjón. Tuttugu og fimm manns fórust, símalínur slitnuðu niður og skemmdir urðu á húsum. [1]
- 1939 - Sovétríkin voru rekin úr Þjóðabandalaginu vegna innrásarinnar í Finnland en það stríð var síðar nefnt vetrarstríðið.
- 1977 - Ofviðri samfara stórflóði olli tjóni víða á suðurströnd Íslands, til dæmis á Stokkseyri. Þetta voru talin mestu flóð á tuttugustu öldinni. [2]
- 1989 - Í Chile voru haldnar fyrstu lýðræðislegar kosningar í sextán ár.
- 2003 - Saddam Hussein fannst falinn í byrgi nálægt Tikrit í Írak og var tekinn höndum af Bandaríkjaher.
[breyta] Fædd
- 1546 - Tycho Brahe, danskur stjörnufræðingur (d. 1601).
- 1867 - Ingibjörg H. Bjarnason, skólastjóri og alþingismaður (d. 1941).
- 1894 - Georg 6. Bretlandskonungur (d. 1952).
- 1951 - Guðmundur Ólafsson, íslenskur leikari.
- 1979 - Michael Owen fótboltamaður.
[breyta] Dáin
- 1788 - Carl Philipp Emanuel Bach, þýskt tónskáld (fæddur 8. mars, 1714).
[breyta] Hátíðis- og tyllidagar
- Samkvæmt kvæði Jóhannesar úr Kötlum, „Jólin koma“ kemur jólasveinninn Stúfur til byggða þennan dag.
[breyta] Tilvísanir
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |