24. desember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nóv – Desember – Jan | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2007 Allir dagar |
24. desember er 358. dagur ársins (359. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 7 dagar eru eftir af árinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 640 - Jóhannes 4. varð páfi.
- 1613 - Þegar fólk í Siglunesi við Siglufjörð ætlaði í guðþjónustu á aðfangadag féll snjóflóð og fimmtíu manns fórust.
- 1624 - Póstþjónusta var stofnuð í Danmörku af Kristjáni 4. Hún var fyrst til húsa í Dönsku kauphöllinni.
- 1934 - Ríkisútvarpið hóf lestur jólakveðja kl. 20:30 og hefur það verið fastur liður á hverju ári síðan og sífellt færst í vöxt.
- 1951 - Líbýa lýsti yfir sjálfstæði.
- 1956 - Flóttamenn frá Ungverjalandi, 52 alls, komu til Íslands fyrir tilstilli Rauða kross Íslands.
- 1974 - Í Ástralíu lagði fellibylur borgina Darwin nánast í rúst.
- 1989 - Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum komst vindur í 120 hnúta (224 km/klst) í hviðu, sem jafnaði eldra met. Þetta met var svo slegið 3. febrúar 1991.
[breyta] Fædd
- 1491 - Ignatius de Loyola, stofnandi Jesúítareglunnar (d. 1556).
- 1810 - Vilhelm Marstrand, danskur listmálari (d. 1873).
- 1818 - James Prescott Joule, breskur eðlisfræðingur (d. 1889).
- 1929 - Mary Higgins Clark, bandarískur rithöfundur.
- 1943 - Tarja Halonen, forseti Finnlands
- 1957 - Hamid Karzai, forseti Afganistans
- 1971 - Ricky Martin, söngvari frá Púertó Ríkó.
[breyta] Dáin
- 1524 - Vasco da Gama, portúgalskur landkönnuður (f. um 1469).
- 1847 - Finnur Magnússon, íslenskur fornfræðingur og skjalavörður (f. 1781).
- 1987 - Ragnar H. Ragnar, íslenskur tónlistarkennari (f. 1898).
- 2002 - Kjell Aukrust, norskur rithöfundur (f. 1920).
[breyta] Hátíðis- og tyllidagar
- Aðfangadagur jóla í Vesturkirkjunni.
- Samkvæmt kvæði Jóhannesar úr Kötlum, „Jólin koma“ kemur jólasveinninn Kertasníkir til byggða þennan dag.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |