Póstþjónusta
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Póstþjónusta felur í sér sendingu á bréfum og bögglum gegn greiðslu bæði innanlands og utan. Alþjóða póstsambandið heldur um þær reglur og reglugerðir sem koma að póstþjónustu á alþjóðavísu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Mismunandi gerðir póstsendinga
[breyta] Almennur bréfapóstur
Almennur bréfapóstur er þannig gerður hann er undir 2 kg. Á Íslandi er miðað við að slíkar sendingar komist inn um bréfalúgur. Almennur bréfapóstur er oftast nær borinn út af bréfbera og er yfirleitt stungið inn um bréfalúgur eða settur í þar til gerða póstkassa á áfangastað þar sem hann bíður viðtakanda. Einnig er hægt að leigja pósthólf á pósthúsum þar sem bréfasendingar eru geymdar þar til viðtakandi sækir þær. Almennur bréfapóstur undir ákveðinni stærð og þyngd er oft undir ríkiseinokun.
[breyta] Ábyrgðarpóstur
Ábyrgðarpóstur er rétt eins og almennur bréfapóstur undir 2 kílógrömmum og er aðeins afhentur gegn undirskrift. Hver sending er skráð með sérstöku raðnúmeri og þannig er ábyrgðarpóstur rekjanlegur.
[breyta] Pakkar
Pakkar eru skilgreindir sem sendingar yfir 2 kg og fá rétt eins og ábyrgðarpóstur sérstakt raðnúmer sem gerir þá rekjanlega. Þeir eru afhentir viðtakanda á áfangastað eða sóttir á viðkomandi pósthús.
[breyta] Aukaþjónusta
[breyta] Flugpóstur og sjópóstur
Flugpóstur (par avion) er fluttur með flugi á milli landa á meðan sjópóstur (par bateau) er fluttur með skipi sömu leið. Burðargjald er hærra með flugpósti en aftur á móti eru sendingar fljótari á leiðinni en með sjópósti.
[breyta] Móttökukvittun
Móttökukvittun er hægt að láta fylgja með skráðum sendingum (ábyrgðarpósti og pökkum) en hún er skrifleg staðfesting á að viðtakandi hafi fengið sendinguna. Sendandi fyllir út upplýsingar um sitt heimilisfang og fleira og viðtakandi skrifar undir viðeigandi reit við móttöku. Kvittunin er svo send aftur til viðtakanda.
[breyta] Brothætt (cotis fragile)
Brothættar pakkasendingar eru sérstaklega merktar með mynd af vínglasi og fá sérstaka meðferð til að koma í veg fyrir að innihaldið brotni.
[breyta] Póstkrafa (remboursment)
Innanlands og á milli sumra landa er hægt að bjóða upp á póstkröfusendingar. Þegar viðtakandi tekur við sendingunni greiðir hann fyrir hana og upphæðin er lögð inn á bankareikning sendanda innan þriggja daga.
[breyta] Greiðsla
Hægt er að staðgreiða eða skuldfæra sendingarkostað þegar sendingar eru póstlagðar en algengt er að notuð séu frímerki sem eru límd á póstsendingar til að greiða fyrir póstþjónustu. Þau er bæði hægt að kaupa fyrirfram og um leið og sending er póstlögð. Frímerkin eru svo stimpluð af viðkomandi póstþjónustu til að ógilda þau. Mörg fyrirtæki og stofnanir sem senda mikið magn af pósti í einu nota einnig þar til gerðar frímerkingavélar til að vigta og stimpla sínar póstsendingar og þá telst burðargjaldið vera greitt.
[breyta] Önnur þjónusta
Í mörgum ríkjum t.d. Lúxemborg er póst og símaþjónustu sinnt af sömu stofnuninni auk þess sem boðið er upp á bankaþjónustu hjá sumum póstþjónustum.
[breyta] Heimildir
- Svar við „Hvaðan kemur orðið póstur og hver er uppruni þess?“ á Vísindavefnum. Sótt 20. janúar 2007.
- Greinin „Mail“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 20. janúar 2007.
- postal system." Encyclopædia Britannica. 2007. Encyclopædia Britannica Online. 20 Jan. 2007 <http://search.eb.com/eb/article-15444>.
- . Viðskiptaskilmálar. Íslandspóstur, 2006.