1920
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Efnisyfirlit |
[breyta] Á Íslandi
- Í janúar - Vinna hefst við Elliðaárvirkjun.
- Í febrúar - Þilskipið Valtýr ferst fyrir sunnan land með 26 manna áhöfn.
- 10. febrúar - Alþingi kemur saman til aukaþinghalds. Stjórnarskrárfrumvarpið frá árinu áður samþykkt óbreytt.
- 16. febrúar - Hæstiréttur Íslands kemur saman í fyrsta sinn.
- 3. apríl - Millilandaskipið Ísland sett í sóttkví við komuna til Reykjavíkur vegna inflúensu um borð.
- 18. maí - Konungur staðfestir hina breyttu stjórnarskrá.
- 25. maí - Guðjón Samúelsson skipaður húsameistari ríkisins.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
- 18. nóvember - Matthías Jochumsson, prestur og skáld (f. 1835).
[breyta] Erlendis
- Rússland og Pólland lýsa yfir stríði.
- Konur í Bandaríkjunum fá kosningarétt.
- Bandaríkin banna framleiðslu og sölu á áfengi.
- Byrjað er að senda flugpóst milli Bretlands og Amsterdam.
- Breski hársnyrtirinn Charlie Stephens deyr þegar að hann fer fram af Niagarafossum í tunnu.
- Konum er veitur réttur til þess að útskrifast með fullar prófgráður frá Oxford háskóla.
- Námuverkamenn á Bretlandseyjum fara í verkfall.
- Repúblikaninn Warren G. Harding er kosinn Forseti Bandaríkjanna.
- Um 3000 manns eru handtekin í Bandaríkjunum, ásakaðir um Kommúnisma.
- Herlög taka gildi á Írlandi
- Lögreglan í London byrjar að nota bíla í stað hesta.
- Lloyd George hlýtur stórriddarakross heiðursherdeildarinnar, æðstu orðu Frakklands.
- Flekkusóttarfaraldur ríður yfir Pólland og drepur þúsundir manna.
- Kommúnistaflokkur Bretlands er stofnaður.
- Líbanon stofnað.
- Stærsta skemmtiferðaskip heims, Bismarck, eyðileggst í eldsvoða.
- Sovésk stjórnvöld viðurkenna sjálfstæði Finnlands.
[breyta] Íþróttir
- Olympíuleikarnir eru haldnir í Antwerpen.
- Suzanne Lenglen vinnur tennismót kvenna í Wimbledon.
- Ástralski skíðaklúbburinn er stofnaður.
- Cleveland Indians vinna heimsmeistaramótið í hafnabolta.
- Aston Villa sigruðu Huddersfield í fyrsta bikarmeistaramótinu í fótbolta sem haldið er á Bretlandi frá því 1915.
- A. Moorhouse slær hraðamet á mótorhjóli, 160km/klst.
[breyta] Listir
- Eugene O'Neill vinnur Pulitzer verðlaun fyrir dramaleik.
- Jazz tónlist verður vinsæl.
- Douglas Fairbanks leikur aðalhlutverkið í The Mask of Zorro, sem slær aðsóknarmet.
[breyta] Fædd
- Sugar Ray Robinson, bandarískur hnefaleikakappi.
- Charlie Parker, bandarískur saxafónisti.
- Ray Bradbury, bandarískur rithöfundur.
- Frederico Fellini, ítalskur leikstjóri.
[breyta] Dáin
- 31. ágúst - Wilhelm Wundt, þýskur sálfræðingur (f. 1832).
- Edmund Barton, fyrsti forsetisráðherra Ástralíu.
- Alexander I Grikklandskonungur, eftir banvænt bit frá apanum sínum.
[breyta] Nóbelsverðlaunin
- Eðlisfræði - Charles Edouard Guillaume
- Efnafræði - Walther Hermann Nernst
- Læknisfræði - Schack August Steenberg Krogh
- Bókmenntir - Knut Hamsun
- Friðarverðlaun - Léon Victor Auguste Bourgeois