Hnefaleikar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnefaleikar eða box er íþrótt þar sem tveir einstaklingar berjast með hnefunum og reyna að slá hvor annan niður. Í ólympískum hnefaleikum er þó eingöngu farið eftir tæknilegri stigagjöf, og gengur ekki út á að fella andstæðinginn.
Hnefaleikar fara fram á velli sem er girtur af með köðlum. Keppt er í þremur lotum í áhugamannaboxi en allt upp í 15 í atvinnumannaboxi. Í hnefaleikum er hægt að sigra með rothöggi (þ.e.a.s. leikmaður sleginn niður og stendur ekki upp eftir 10 sekúndur), tæknilegu rothöggi (leikmaður getur ekki haldið áfram vegna meiðsla eða þreytu) eða stigum sem dómarar reikna út.
Hnefaleikaviðureign er oft kölluð bardagi.