Dalai Lama
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dalai Lama er heitið sem einn aðalleiðtogi lamasiðar, helstu gerðar búddisma í Tíbet, ber. Dalai Lama voru einnig valdamestu stjórnmálaleiðtogar Tíbet frá því á sautjándu öld fram til ársins 1951 er Kínverjar hertóku Tíbet. Núverandi Dalai Lama er Tenzin Gyatso en hann er í útlegð á Indlandi. Dalai Lama fæddist 6.júlí 1935 í norð-austur Tíbet, hann er fjórtánda endurholdgun Dalai Lama og er þjóðhöfðingi og andlegur leiðtogi Tíbeta. Dalai Lama hefur búið á Indlandi síðan hann flúði þangað 1959. Árið 1989 hlaut Dalai Lama friðarverðlaun Nóbels fyrir að stuðla að friðsamlegri baráttu Tíbeta gegn hernámi Kína á landi þeirra, en Dalai Lama hefur ávallt neitað að beita ofbeldi í baráttunni fyrir bættum hag landa sinna og frelsun Tíbet.