11. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feb – Mars – Apr | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2008 Allir dagar |
11. mars er 70. dagur ársins (71. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 295 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1513 - Leó 10. var kjörinn páfi.
- 1616 - Galileo Galilei hitti Pál 5. páfa í eigin persónu og ræddi við hann um afstöðu hans til sólkerfisins.
- 1649 - Franska borgarastyrjöldin: Uppreisnarmenn og konungdæmið gerðu með sér friðarsamning í Rueil.
- 1810 - Napóleon Bonaparte gekk að eiga Maríu Lovísu, dóttur Frans 1. Austurríkiskeisara.
- 1894 - Fyrsta kókflaskan var seld í sælgætisbúð í bænum Vicksburg í Mississippi.
- 1922 - Mahatma Gandhi var fangelsaður fyrir borgaralega óhlýðni.
- 1935 - Franska skonnortan Lieutenant Boyan strandaði á Slýjafjöru í Vestur-Skaftafellssýslu kl. 11 að kvöldi.
- 1938 - Innlimun Austurríkis (Anschluss): Þýskaland tók við stjórn í Austurríki.
- 1941 - Línuveiðarinn Fróði varð fyrir árás þýsks kafbáts suður af Vestmannaeyjum. Fimm sjómenn fórust í árásinni.
- 1950 - Kvikmynd Óskars Gíslasonar, Síðasti bærinn í dalnum, var frumsýnd.
- 1971 - Lög voru sett um happdrættislán ríkissjóðs til fjáröflunar fyrir vega- og brúargerð um Skeiðarársand. Þremur árum síðar var vegurinn opnaður.
- 1976 - Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness var stofnað.
- 1983 - Donald D. Maclean, einn þeirra sem njósnuðu í Bretlandi fyrir Rússa, var jarðsettur í Moskvu.
- 1984 - Vélbáturinn Hellisey frá Vestmannaeyjum sökk og fórust allir nema einn maður, Guðlaugur Friðþórsson, sem náði að synda alla leið í land, um fimm kílómetra langa leið.
- 1985 - Mikhail Gorbatsjov varð leiðtogi Sovétríkjanna.
- 1990 - Litháen varð sjálfstætt ríki með Vitautas Landsbergis sem forseta.
- 2004 - Sprengjutilræði var framið í farþegalest í Madrid. 190 manns fórust.
- 2006 - Íslandsbanki breytti nafni sínu í Glitnir banki hf..
[breyta] Fædd
- 1444 - Donato Bramante, ítalskur arkitekt (d. 1514).
- 1847 - Sidney Sonnino, ítalskur stjórnmálamaður (d. 1922).
- 1899 - Friðrik 9. Danakonungur (d. 1972).
- 1903 - Ronald Syme, nýsjálenskur sagnfræðingur (d. 1989).
- 1904 - Harold F. Cherniss, bandarískur fornfræðingur (d. 1987).
- 1920 - Kenneth Dover, breskur fornfræðingur.
- 1952 - Douglas Adams, rithöfundur (d. 2001).
- 1980 - Úlfar Linnet, íslenskur skemmtikraftur.
[breyta] Dáin
- 1514 - Donato Bramante, ítalskur arkitekt (f. 1444).
- 1955 - Alexander Fleming, skoskur gerlafræðingur sem uppgötvaði pensillínið (f. 1881).
- 2006 - Slobodan Milošević, fyrrum forseti Júgóslavíu (f. 1941).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |