Moskva
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnit: 55°45′ N 37°35′ A
Moskva (rússneska: Москва) borg í evrópska hluta Rússlands. Hún er höfuðborg landsins og stærsta borg Evrópu. Í borginni búa 10.469.000 manns. Fyrstu heimildir um borgina í sögulegum gögnum eru frá árinu 1147, þá sem hluti af furstadæminu Suzdal. Árið 1295 varð borgin að höfuðborg furstadæmisins Moskvu. Í gegnum borgina rennur Moskvuáin sem að tengir borgina við Eystrasalt, Hvítahaf, Svartahaf og Kaspíahaf auk Azovshafs.
Núverandi borgarstjóri í Moskvu heitir Yuriy Luzhkov en hann varð borgarstjóri árið 1992.
Í borginni er að finna mikið af heimsfrægum arkitektúr og þá mest kirkjum. Á meðan að valdatíð Jósefs Stalín stóð sem hæst var mikið rifið af kirkjum og byggingum til þess að búa til pláss hafa pláss fyrir vegaframkvæmdir. Á valdatíð Stalíns var lítið um það að viðhalda þeirri fegurð bygginga og arkitektúrs sem Moskva hafði áður verið þekkt fyrir. Til að mynda reisti hann nokkur gifsklædd háhýsi sem síðar voru kölluð „Rjómatertur Stalíns“ í óvirðingarskyni. St. Basil dómkirkjan, Rauða torgið og Kreml eru á meðal þekktari kennileita borgarinnar.
Eftir byltinguna árið 1917 var mörgum kirkjum og öðrum helgistöðum lokað eða breytt í söfn og sumir voru jafnaðir við jörðu. En þrátt fyrir það héldu margir þeirra ótrauðir áfram, líkt og kirkjur kristinna, guðshús gyðinga og moskur í íslam. Á upphafsdögum glasnost á seinni hluta níunda áratugarins losnaði um trúarbragðahöftin og hafist var handa við endurnýjun margra helgidóma borgarinnar.
[breyta] Ítarefni
[breyta] Heimildir
- Árni Bergmann. Miðvikudagar í Moskvu. Mál og menning, 1979.
- Greinin „Moscow“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. maí 2007 2007.
[breyta] Tenglar