See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Kristni - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Kristni

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Kross, eitt algengasta tákn Kristinnar trúar.
Kross, eitt algengasta tákn Kristinnar trúar.

Kristni er eingyðistrú af abrahamískum stofni. Upphafsmaður trúarbragðanna, og sá sem þau eru kennd við var Jesú frá Nasaret sem meðal kristinna manna er kallaður Jesús Kristur. Byggjast þau á boðskap hans og trúnni á að hann hafi verið sonur Guðs og risið upp frá dauðum, svo að þeir sem á hann trúi öðlist eilíft líf. Um hann má lesa í Nýja testamentinu, sem er síðari hluti Biblíunnar, trúarrits kristinna manna.

Kristni er fjölmennustu trúarbrögð heimsins í dag, einkum og sér í lagi á vesturlöndum og er hún þess vegna oftast talin ein af meginstoðum vestrænnar menningar.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga

Kristni byrjaði fyrir botni Miðjarðarhafs, þaðan sem Jesús var, en fljótlega færðist þungamiðja trúarbragðanna til Rómar, sem var á þeim tíma langöflugasta miðstöð menningar við Miðjarðarhafið. Til að byrja með voru kristnir fáir og litið niður á þá, og voru þeir ofsóttir í rómaveldi vegna þess að þeir neituðu að dýrka keisarann. En árið 313 veitti Konstantín keisari kristnum mönnum trúfrelsi og hætti ofsóknum í Róm þar með. Árið 391 gerði Theodosius I kristni að ríkistrú í rómaveldi. Kristni breiddist einnig út í nágrannalöndum, árið 301 varð kristni gerð að ríkistrú í Armeníu og var það fyrsta kristna ríkiskirkjan í heiminum. Til að byrja með var lítil miðstjórn meðal kristinna og miklar deilur um ýmis trúaratriði, t.d. eðli Jesú og Heilaga þrenningu. Keisarinn var yfir kirkjunni, en það var aðeins að nafninu til. Af og til voru haldin kirkjuþing, þar sem saman komu helstu trúspekingar samtímans og embættismenn hinna ýmsu kirkjudeilda, til að taka ákvarðanir um stefnur og strauma er fylgja skyldi. Smám saman fór þó biskupinn í Róm að auka völd sín og varð embætti hans smám saman að því, sem við í dag köllum páfa. Þetta sætti patríarkinn í Konstantínópel (nú: Istanbúl) sig ekki þannig að kirkjan klofnaði í rómversk-kaþólsku kirkjuna (sem einnig var nefnd Vesturkirkjan) og rétttrúnaðarkirkjuna (sem einnig var nefnd Austurkirkjan). Á 16. öldinni varð svo enn klofningur, þegar þeir, sem eru enn í dag kallaðir mótmælendur, mótmæltu valdi páfa og spillingu innan kirkjunnar og klufu sig frá henni í hinar ýmsu deildir, svo sem lúterstrú og kalvínista.

[breyta] Kristni í dag

Nú er Kristni fjölmennustu trúarbrögð heimsins, með um 2 milljarða fylgjenda. Rúmur helmingur þeirra telst til rómversk-kaþólsku kirkjunnar, 367 milljónir eru mótmælendur og 216 milljónir tilheyra grísku/rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Kristnir búa flestir í Norður- og Suður-Ameríku, Evrópu og Ástralíu. Hlutfallslega eru kristnir mun færri í Asíu og Afríku en en í hinum álfunum, en þar eru þó margir kristnir, meðal annars í Eþíópíu, þar sem kristni hefur verið við lýði frá 330.

[breyta] Kristni á Íslandi

Kristni var lögtekin á Íslandi árið 1000, þó sumir segja að kritnitakan hafi orðið fyrr.

[breyta] Helstu greinar Kristni

[breyta] Tenglar

Á öðrum tungumálum


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -