Páfi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Páfi (af latínu papa „faðir“) er titill leiðtoga nokkurra kristinna kirkna. Þekktastur er höfuð rómversk-kaþólsku kirkjunnar.
Efnisyfirlit |
[breyta] Rómversk-kaþólska
Biskupinn í Róm, sem einnig er æðsti leiðtogi rómversk-kaþólsku kirkjunnar, er nefndur páfi. Páfinn í Róm er talinn arftaki Péturs postula og er á stundum allt frá miðöldum nefndur „staðgengill Krists“ (á latínu „vicarius Christi“). Núverandi páfi er nefndur Benedikt XVI og hefur verið páfi frá 19. apríl 2005.
[breyta] Listi yfir páfa kaþólsku kirkjunnar
- Sjá Listi yfir páfa
[breyta] Heimild
[breyta] Tengt efni