23. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feb – Mars – Apr | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2008 Allir dagar |
23. mars er 82. dagur ársins (83. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 283 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 752 - Stefán 2. varð páfi.
- 1663 - Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti lést. Talið er að sálmur Hallgríms Péturssonar, „Um dauðans óvissan tíma“, hafi fyrst verið sunginn yfir moldum hennar.
- 1903 - Wright-bræður sóttu um einkaleyfi á hönnun sinni á flugvél.
- 1919 - Benito Mussolini stofnaði fasistaflokkinn í Mílanó.
- 1933 - Adolf Hitler varð kanslari Þýskalands.
- 1937 - Sundhöllin í Reykjavík var vígð.
- 1948 - Danska þingið samþykkti Heimastjórnarlögin sem færðu Færeyingum völd yfir eigin málum.
- 1956 - Pakistan varð fyrsta íslamska lýðveldið.
- 1960 - Söngsveitin Fílharmónía kom fram opinberlega í fyrsta sinn í uppfærslu Þjóðleikhússins á Carmina Burana eftir Carl Orff.
- 1965 - Geimfararnir Virgil I. „Gus“ Grissom og John Young fóru út í geiminn í fyrsta tveggja manna bandaríska geimfarinu Gemini 3.
- 1970 - Þrír þjóðkunnir leikarar héldu upp á 25 ára leikafmæli: Baldvin Halldórsson, Gunnar Eyjólfsson og Róbert Arnfinnsson.
- 1983 - Ronald Reagan Bandaríkjaforseti setti fram fyrstu hugmyndir sínar um tækni til að verjast eldflaugum. Áætlunin (SDI) var kölluð „Stjörnustríðsáætlunin“ í fjölmiðlum.
- 1989 - Stanley Pons og Martin Fleischmann lýstu því yfir að þeim hefði tekist að framkalla kaldan kjarnasamruna í rannsóknarstofu við Háskólann í Utah í Bandaríkjunum.
- 1996 - Fyrstu forsetakosningarnar voru haldnar í kínverska lýðveldinu á Tævan.
- 1998 - Kvikmyndin Titanic vann ellefu Óskarsverðlaun og jafnaði þar með met Ben Húr frá 1959. Lokakafli Hringadróttinssögu jafnaði metið svo aftur árið 2004.
- 1999 - Luis Maria Argana, varaforseti Paragvæ, var myrtur.
- 2001 - Rússneska geimstöðin Mír hrapaði til jarðar í Kyrrahafið úti fyrir ströndum Nýja Sjálands.
- 2004 - Síðasti þáttur gamanþáttaraðarinnar Frasier var tekinn upp í Bandaríkjunum.
[breyta] Fædd
- 1950 - Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
- 1965 - Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur og bæjarfulltrúi í Garðabæ.
- 1968 - Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka.
- 1899 - Friedrich A. von Hayek, austurrísk-breskur hagfræðingur, stjórnmálaheimspekingur og nóbelsverðlaunahafi.
- 1908 - Joan Crawford, leikkona, (d. 1977).
- 1910 - Akira Kurosawa, kvikmyndaleikstjóri (d. 1998)
- 1912 - Wernher von Braun, eðlisfræðingur og verkfræðingur (d. 1977)
[breyta] Dáin
- 1555 - Júlíus III páfi, (f. 1487)
- 1801 - Pavel I Petrovítsj, (Páll I) Rússlandskeisari (f. 1754)
- 1992 - Friedrich A. von Hayek, austurrísk-breskur hagfræðingur, stjórnmálaheimspekingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1899).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |