Spanish Fork
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Spanish Fork er smábær í Utah-fylki í Bandaríkjunum. Við manntal 2004 voru íbúar alls 22.839.
[breyta] Söguágrip
Samfélagið Spanish Fork varð til þegar mormónafrumbyggjar settust hér að árið 1850. Nafnið á sér rætur í ferðalagi tveggja munka af spænskum ættum árið 1776. Þeir töldu landið óbyggilegt og við þeim blasa óræktanleg eyðimörk. Á árunum frá 1856 til 1862 fluttust 16 íslenskir mormónar til Spanish Fork. Þeir stofnuðu þar fyrsta samfélag Íslendinga í Ameríku. Voru það hjónin Samúel Bjarnason og Margrét Gísladóttir ásamt Helgu Jónsdóttur, og voru öll frá Vestmannaeyjum. Tók ferðin um tíu mánuði. Seinna fluttist þangað Eiríkur á Brúnum, og skrifaði um ferð sína á þessar slóðir og veru sína hér. Í bókinni Paradísarheimt notaði Halldór Laxness sögu Eiríks og varð hún kveikjan að skáldsögunni.
Þann 26. júní 2005 endurvígði forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, minnisvarða um landnám Íslendinga í Spanish Fork.