14. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
14. ágúst er 226. dagur ársins (227. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 139 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1784 - Jarðskjálftar riðu yfir Suðurland og aftur 16. ágúst. Eitt hundrað bæir hrundu til grunna, fjöldi manns grófst undir rústum og þrír fórust. Áætlað er að sterkasti skjálftinn hafi verið 7,5 stig.
- 1789 - Samkvæmt tilskipun konungs skyldu íslenskir biskupar eftirleiðis vígðir á Íslandi í sparnaðarskyni.
- 1874 - Þrír Íslendingar ásamt Englendingnum W.L. Watts komu úr fjögurra daga ferð á Vatnajökul, sem farin var til að kanna eldstöðvar og gefa fjöllum nöfn. Watts fór yfir Vatnajökul ári síðar.
- 1942 - Þýsk sprengjuflugvél, sem stefndi til Reykjavíkur var skotin niður og var þetta fyrsta óvinaflugvél sem Bandaríkjamenn skutu niður yfir Evrópu í síðari heimsstyrjöld.
- 1942 - Golfsamband Íslands var stofnað og er það elsta sérsambandið innan ÍSÍ.
- 1951 - Fyrsti Lionsklúbbur á Íslandi stofnaður, Lionsklúbbur Reykjavíkur.
- 1959 - Alþingi samþykkti breytingu á skipan kjördæma á Íslandi og var þeim fækkað úr 28 í 8 um leið og þingmönnum var fjölgað úr 42 í 60.
- 1982 - Rúvak, sem er Akureyrardeild Ríkisútvarpsins, tók til starfa.
- 1982 - Rainier III, fursti af Mónakó og kona hans, Grace Kelly, komu í heimsókn til Íslands ásamt börnum sínum tveimur, Carolinu og Albert. Einum mánuði síðar lést Grace Kelly í bílslysi.
- 1999 - Byggin Eyrarsundsbrúarinnar lauk. Við það tækifæri hittust Friðrik Danakrónprins og Viktoría krónprinsessa með táknrænum hætti á miðri brúnni.
- 2005 - Farþegaþota með 121 mann um borð hrapaði á Grikklandi eftir að allir um borð misstu meðvitund vegna snarlækkaðs loftþrýstings.
[breyta] Fædd
- 1688 - Friðrik Vilhjálmur 1., prússneskur konungur (d. 1740).
- 1771 - Walter Scott, skoskur rithöfundur (d 1832).
- 1777 - Hans Christian Ørsted, danskur eðlis- og efnafræðingur (d. 1851).
- 1947 - Danielle Steel, bandarískur rithöfundur.
- 1950 - Gary Larson, bandarískur teiknimyndasöguhöfundur.
- 1959 - Magic Johnson, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1966 - Halle Berry, bandarísk leikkona.
[breyta] Dáin
- 1951 - William Randolph Hearst, bandarískur blaðaútgefandi (f. 1863).
- 1956 - Bertold Brecht, þýskur rithöfundur (f. 1898).
- 1988 - Enzo Ferrari, ítalskur bílahönnuður (f. 1898).
- 2004 - Czesław Miłosz, pólskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1911).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |