6. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
6. ágúst er 218. dagur ársins (219. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 147 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1228 - Þorvaldsbrenna: Synir Hrafns Sveinbjarnarsonar fóru að Þorvaldi Snorrasyni, goðorðsmanni frá Vatnsfirði, og brenndu hann inni.
- 1806 - Hið Heilaga rómverska ríki var formlega leyst upp þegar síðasti keisarinn, Frans 2., sagði af sér. Austurríska keisaradæmið og Þýska bandalagið tóku við.
- 1809 - Í Klúbbnum í Reykjavík (þar sem nú er hús Hjálpræðishersins) efndi konungurinn, Jörgen Jörgensen, til dansleiks.
- 1824 - Simón Bolívar sigraði spænskt riddaralið í orrustunni um Junín
- 1825 - Bólivía lýsti yfir sjálfstæði frá Spáni.
- 1907 - Lárus Rist fimleikakennari vann það einstæða afrek að synda alklæddur og í sjóklæðum yfir Eyjafjarðarál.
- 1933 - Steinn Steinarr skáld og fjórir aðrir hlutu dóm fyrir að skera niður hakakrossfána við hús þýska vararæðismannsins á Siglufirði.
- 1937 - Kron (Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis) stofnað. Voru á stofnfundi þess mættir 93 fulltrúar frá Pöntunarfélagi verkamanna í Reykjavík, Kaupfélagi Reykjavíkur, Pöntunarfélagi Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnafirði og Pöntunarfélagi Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur, en félög þessi ákváðu á þessum degi að sameinast í eitt félag.
- 1960 - Steingrímsstöð, 26 Mw virkjun í Soginu, var tekin í notkun við hátíðlega athöfn.
- 1962 - Jamaíka lýsti yfir sjálfstæði frá Sambandsríki Vestur-Indía.
- 1965 - Hljómplata Bítlanna, Help!, kom út í Bretlandi.
- 1974 - Gerald Ford tók við embætti Bandaríkjaforseta í kjölfar afsagnar Nixons.
- 1985 - Afhjúpaður var minnisvarði um Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnara í landi Miðhúsa á Fljótsdalshéraði, en þar var hann fæddur.
[breyta] Fædd
- 1638 - Nicolas Malebranche, franskur heimspekingur (d. 1715).
- 1881 - Alexander Fleming, skoskur líf- og lyfjafræðingur (d. 1955).
- 1928 - Andy Warhol, bandarískur listamaður (d. 1987).
- 1931 - Matthías Á. Mathiesen, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1963 - Kevin Mitnick, bandarískur tölvuþrjótur.
[breyta] Dáin
- 1221 - Heilagur Dóminíkus, stofnandi Dóminíkanareglunnar (f. 1170).
- 1458 - Kalixtus 3. páfi (f. 1378).
- 1660 - Diego Velásquez, spænskur listmálari (f. 1599).
- 1694 - Antoine Arnauld, franskur guðfræðingur, heimspekingur og stærðfræðingur (f. 1612).
- 1746 - Kristján 6., kongungur Íslands og Danmerkur frá 1730 (f. 1699).
- 1994 - Giovanni Spadolini, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1925).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |