3. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
3. ágúst er 215. dagur ársins (216. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 150 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1057 - Stefán 9. tók við embætti páfa.
- 1905 - Bændur mótmæltu lagningu ritsíma til Íslands með því að fjölmenna til Reykjavíkur. Þess í stað vildu þeir fá loftskeytasamband.
- 1914 - Þjóðverjar sögðu Frökkum stríð á hendur.
- 1958 - Kjarnorkuknúni kafbáturinn USS Nautilus sigldi undir Norðurpólinn.
- 1960 - Níger fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
- 1969 - Í Húsafellsskógi voru um tuttugu þúsund manns á Sumarhátíðinni, eða um tíu prósent allra Íslendinga. Þetta er fjölmennasta útihátíð sem haldin hefur verið um verslunarmannahelgi á Íslandi.
- 1980 - Vigdís Finnbogadóttir, nýkjörin forseti Íslands, opnaði minjasafn á Hrafnseyri og kapella var vígð þar, hvort tveggja í minningu Jóns Sigurðssonar forseta.
- 1984 - Ringo Starr, trommuleikari Bítlanna, var heiðursgestur á útihátíð í Atlavík.
[breyta] Fædd
- 1887 - Rupert Brooke, enskt skáld (d. 1915).
- 1963 - James Hetfield, söngvari og lagahöfundur bandarísku hljómsveitarinnar Metallica.
- 1968 - Eyjólfur Sverrisson, íslenskur knattspyrnumaður.
- 1977 - Tómas Lemarquis, íslenskur leikari.
[breyta] Dáin
- 1460 - Jakob 2. Skotakonungur (f. 1430).
- 1780 - Étienne Bonnot de Condillac, franskur heimspekingur (f. 1715).
- 1924 - Joseph Conrad, enskur rithöfundur af pólskum uppruna (f. 1857).
- 1929 - Thorstein Veblen, bandarískur hagfræðingur (f. 1857).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |