20. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
20. ágúst er 232. dagur ársins (233. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 133 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1888 - Þingvallafundur var haldinn um stjórnarskrármálið.
- 1898 - Á Þingvöllum var vígt veitinga- og gistihúsið Valhöll og dró það nafn af búð Snorra Sturlusonar. Húsið var reist þar sem búðin stóð forðum, en var síðar flutt þangað sem það er nú.
- 1914 - Fyrri heimsstyrjöldin: Þjóðverjar náðu Brussel á sitt vald.
- 1933 - Fyrsta ferð á bíl farin yfir Sprengisand og komu ferðalangar að Mýri í Bárðardal eftir fimm daga leiðangur úr Landsveit.
- 1944 - Reykjavíkurborg tók við rekstri Strætisvagna Reykjavíkur í fyrra sinn.
- 1960 - Senegal klauf sig út úr Malísambandinu.
- 1968 - Vorið í Prag var brotið á bak aftur af 200.000 hermönnum og 5.000 skriðdrekum frá Varsjárbandalaginu.
- 1975 - Fjallið Mont Blanc (Hvítafjall) var klifið af íslenskri konu í fyrsta sinn og var það Ólafía Aðalsteinsdóttir.
- 1982 - Átján manna hópur kleif Eldey í fyrsta sinn síðan 1971. Í hópnum var ein kona, Halldóra Filippusdóttir, og var hún fyrst kvenna til að klífa eyjuna. Eldey var fyrst klifin árið 1894.
- 1982 - Marsvínavaða, yfir tvö hundruð dýr, stefndi á land við Rif á Snæfellsnesi, en það tókst að snúa þeim frá landi og reka á haf út. Ekki hefur fyrr tekist að bjarga svo stórum hópi.
[breyta] Fædd
- 1779 - Jöns Jakob Berzelius, sænskur efnafræðingur (d. 1848).
- 1875 - Ágúst H. Bjarnason, sálfræðingur (d. 1952).
- 1941 - Slobodan Milošević, forseti Serbíu og Svartfjallalands.
- 1962 - Phil Lynott, írskur rokksöngvari.
[breyta] Dáin
- 1611 - Tomás Luis de Victoria, spænskt tónskáld (f. 1548).
- 1854 - Friedrich Wilhelm Joseph von Schelling, þýskur heimspekingur (f. 1775).
- 1971 - Kristín Ólafsdóttir, íslenskur læknir (f. 1889).
- 1980 - Björgvin Sæmundsson, bæjarstjóri Kópavogs (f. 1930).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |