See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Tomás Luis de Victoria - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Tomás Luis de Victoria

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Tomás Luis de Victoria (154820. ágúst 1611) var spænskt tónskáld á síðari hluta endurreisnarinnar. Hann var frægasta tónskáld Spánar á 17. öld og er af mörgum talinn mestur á eftir Palestrina af tónskáldum þessa tíma.

Victoria var fæddur í Avila á Spáni í kring um 1548, hann var sjöunda barn Francisca Suarex de la Concha og Francisco Luis de Victoria og voru þau af virtum ættum. En þau áttu þá eftir að eignast fjögur börn áður en að Francisco Luis de Victoria dó þegar Tomás Victoria var aðeins níu ára gamall.

Victoria söng í kór við biskupskirkjuna í Avila þegar hann var ungur og lærði þar undirstöður í tónlist, hann gekk líka í Rómversk kaþólskan tónlistarskóla þar sem hans formleg tónlistarnám hans hófst. Á þessum tíma var hann að læra hjá helstu tónskáldum spánar svo sem Jeronimo de Espinar, Bernardino de Ribera, Juan Navarrro og Hernando de Isasi, einnig hefur verið talið að hann hafi hitt Antonio de Cabezon á þessum tíma.

Þegar að gekk á unglingsárin hjá Victoria var hann sendur til Rómar í Collegium Germanicum skólan þar sem hann var skráður sem söngvari. Í Róm hitti Victoria Palestrina og lærði hugsanlega hjá honum. 1569 fór svo Victoria frá Collegium Germanicum og gerðist Organisti og Sööngvari við spánsku kapelluna Santa Maria de Monserrat. 1571 var honum svo boðið aftur í Collegium Germanicum sem kennari og sama ár tók hann við af Palestrina sem stjórnandi við Rómverska Prestaskólan.

1572 kom út fyrsta bók Victoria hann var þá 24 ára gamall og var þetta bók með mótettum. Bókin var tileinkuð Otto von Truchsess von Waldburg sem var erkibiskup af Augsburg og mikill aðdáandi og stuðningsmaður Victoria.

1575 var Collegium Germanicum flutt af páfanum og var Victoria þá gerður að yfirstjórnanda skólans og var þá yfir tónlistarmenntun kórdrengjanna kenndi völdum nemendum kontrapunkt og tónsmíðar og hafði yfirumsjón með allri tónlist í kirkjunum tengdum Collegium GERmanicum. Hann þurfti því að segja skilið við Santa Maria de Monserrat kirkjuna þar sem hann var söngvairi og orgelleikari. Þetta sama ár nam hann til prests og var vígður sem slíkur 28. ágúst.

1578 sagði Victoria upp störfum hjá Collegium Germanicum og settist að sem kapelluprestur við San Girolamo della Carita. Í sjö ár bjó hann með San Felipe Neri og var í djúpum trúarlegum hugleiðingum. Á þessum tíma bjó Victoria einnig með tveim merkum tónskáldum, þeim spánska Francisco Soto de Langa og ítalska Giovanni Animuccia. En Victoria sat ekki auðum höndum því á þessum árum komu frá honuum margar messur og mótettur og breiddist tónlist hans um heiminn.

1587 snéri Victoria aftur heim til Spánar og varð prestur og kórstjóri við kapelluna Real Convento de las Clarisas Descalzas í Madrid og gengdi því starfi til 1603. Á þessum tíma fór hann þó til Rómar 1592 til að hafa umsjón með fluttningi á verki sínu “Missae liber secundus” og tveim árum síðar mætti hann í jarðarför Palestrina. Eftir að Keisarinjan María sem hafði ráðið Victoria til starfa deyr 1603 verður Victoria að Orgelleikara og deyr 1611.

[breyta] Heimildir


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -