7. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
7. ágúst er 219. dagur ársins (220. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 146 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1727 - Öræfajökull tók að gjósa. Mikið öskufall stóð í þrjá daga svo sá vart mun dags og nætur. Gosið stóð í eitt ár. Áður gaus Öræfajökull á sögulegum tíma árið 1362 og lagði þá Litlahérað í auðn.
- 1772 - Útilegumennirnir Fjalla-Eyvindur Jónsson og Halla Jónsdóttir voru handteknir á Sprengisandi og flutt norður í Mývatnssveit. Skömmu síðar slapp Eyvindur og tókst honum fljótlega að frelsa Höllu. Þau lágu úti í tæpa tvo áratugi.
- 1939 - Haukur Einarsson synti Grettissund frá Drangey til lands á mettíma, þremur klst og 20 mínútum.
- 1945 - Áfengisskömmtun, sem staðið hafði í fimm ár, var hætt.
- 1960 - Fílabeinsströndin fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
- 1960 - Vilhjálmur Einarsson bætti eigið Íslandsmet í þrístökki frá því í Melbourne 1956 er hann stökk 16,70 metra á frjálsíþróttamóti í Reykjavík. Þetta met stendur enn (2006) og var þá næstlengsta stökk í heimi.
[breyta] Fædd
- 1560 - Erzsébet Báthory, ungverskur raðmorðingi (d. 1614).
- 1804 - Johan Nicolai Madvig, danskur fornfræðingur (d. 1886).
- 1906 - Nelson Goodman, bandarískur heimspekingur (d. 1998).
- 1948 - Vilmundur Gylfason, íslenskur blaðamaður og stjórnmálamaður (d. 1983).
- 1978 - Þórdís Björnsdóttir, íslenskt skáld.
[breyta] Dáin
- 309 - Eusebíus, páfi.
- 1848 - Jöns Jakob Berzelius, sænskur efnafræðingur (f. 1779).
- 1908 - Antonio Starabba, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1839).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |