Raðmorðingi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Raðmorðingi er maður sem fremur fjölda morða, hvert á fætur öðru og oftast eftir vissu mynstri. Ástæður fyrir slíkum morðum má rekja til áráttuhegðunar sem í mörgum tilfellum, en ekki öllum, hefur blossað upp vegna (brenglaðar) æsku morðingjans. Raðmorðingjar drepa oft til að þóknast einhverju sem er rótsett í þeim (frá æsku), en sjaldnast í hagnaðarskyni (eins og t.d. leigumorðingjar) eða vegna hugmyndarfræðilegra og pólitískra ástæðna (eins og t.d. hryðjuverkamenn). Raðmorðingjar þekkja sjaldnast fórnarlömb sín, og oft er þessi árátta tengd kynhvöt morðingjans.