See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Fyrri heimsstyrjöldin - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Fyrri heimsstyrjöldin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Stríðandi fylkingar í fyrri heimsstyrjöldinni.
Stríðandi fylkingar í fyrri heimsstyrjöldinni.

Fyrri heimsstyrjöldin (sem nefnt var heimsstríðið fyrir seinni heimsstyrjöldina) var mannskætt stríð sem geysaði í Evrópu í fjögur ár. Stríðið hefur verið nefnt „stríðið mikla“ og „stríðið sem enda átti öll stríð“. Sá atburður sem miðað er við að marki upphaf stríðsins var morðið á Frans Ferdinand erkihertoga og ríkisarfa Austurríkis í Sarajevó þann 28. júní 1914. Átök hófst í ágúst 1914 og breiddust hratt út. Þegar upp var staðið lágu um 10 milljón manns í valnum, 20 milljónir höfðu særst og ótal manns misst heimili sín og lifibrauð. Stríðinu lauk með uppgjöf Þjóðverja 11. nóvember 1918. Að stríðinu loknu funduðu fyrrum fjandmenn í Versölum í Frakklandi hvar Versalasamningurinn var gerður.

Sigurvegarar í stríðinu voru bandamenn undir forystu Frakka en auk þeirra voru Bretar og Rússar (til 1917) og síðar einnig Ítalir og Bandaríkjamenn. Öxulveldin voru Austurríki-Ungverjaland, Þýskaland, Búlgaría og Ottóman veldið.

Flestar orrustur í fyrri heimsstyrjöldinni voru háðar á vesturvígstöðvunum, lengst af í formi skotgrafahernaðar en á milli andstæðra skotgrafa var svokallað „einskis manns land“. Skotgrafirnar náðu allt frá Norðursjó að landamærum Sviss. Á austurvígstöðvunum komu víðáttur Austur-Evrópu og takmarkaðar járnbrautir í veg fyrir langvarandi skotgrafahernað og ollu meiri hreyfanleika víglínanna. Einnig voru háðar orrustur á hafi og neðansjávar með kafbátahernaði og í fyrsta sinn í lofti. Meira en níu milljónir hermanna létu lífið í orrustum og milljónir óbreyttra borgara fórust.

Stríðið olli því að tvö ríki liðuðust í sundur og tvö önnur keisaradæmi liðu undir lok: Austurríki-Ungverjaland og Ottóman veldið liðuðust í sundur og Þýska keisaradæmið og Rússneska keisaradæmið liðu undir lok. Þýskaland glataði öllu veldi sínu utan Evrópu og ný ríki urðu til, svo sem Tékkóslóvakía, Eistland, Lettland, Litháen, Finnland, Pólland og Júgóslavía.

Írskar riflaskyttur í skotgröfunum við Somme, 1. júlí 1916.
Írskar riflaskyttur í skotgröfunum við Somme, 1. júlí 1916.
Þjóðverjar kröfðu Guð um að refsa Englandi „Gott strafe England“ með þessu veggjakroti í Frakklandi.
Þjóðverjar kröfðu Guð um að refsa Englandi „Gott strafe England“ með þessu veggjakroti í Frakklandi.
Woodrow Wilson forseti tilkynnir Bandaríkjaþingi um riftun stjórnmálasambands við Þýskaland 3. febrúar 1917.
Woodrow Wilson forseti tilkynnir Bandaríkjaþingi um riftun stjórnmálasambands við Þýskaland 3. febrúar 1917.
Breskir hermenn með Vickers vélbyssu.
Breskir hermenn með Vickers vélbyssu.
Bróðurpart styrjaldarinnar voru hermenn á vesturvígstöðvunum fastir í skotgröfum.
Bróðurpart styrjaldarinnar voru hermenn á vesturvígstöðvunum fastir í skotgröfum.
forsíða New York Times þann, 11. nóvember 1918.
forsíða New York Times þann, 11. nóvember 1918.

Efnisyfirlit

[breyta] Orsakir stríðsins

Þann 28. júní 1914 skaut Gavrilo Princip Franz Ferdinand, erkihertoga Austurríkis-Ungverjalands og erfingja krúnunnar, og eiginkonu hans Sophie Chotek til bana í Sarajevo. Princip var meðlimur í þjóðernissinnuðu samtökunum Ung Bosnía, sem höfðu það á stefnuskrá sinni að sameina alla Suður-Slava í einu ríki, sjálfstæðu og óháðu Austurríki-Ungverjalandi (sjá einnig: Svarta höndin). Morðið í Sarajevo hratt af stað atburðarás sem stigmagnaðist og leiddi til stríðs. Morðið var tilefni stríðsins en raunverulegar orsakir þess voru aftur á móti margvíslegar og flóknar.

[breyta] Vopnakapphlaup

Spennan jókst í vopnakapphlaupi breska og þýska flotans árið 1906 þegar HMS Dreadnought var hleypt af stokkunum. Dreadnought var byltingarkennt orrustuskip sem gerði eldri orrustuskip úrelt. (Breski flotinn hélt alltaf forystu sinni gagnvart þeim þýska.) Sagnfræðingurinn Paul Kennedy hefur bent á að báðar þjóðirnar hafi trúað á kenningu Alfred Thayer Mahan um að yfirráð á hafi væru sérhverju stórveldi ómissandi.

Sagnfræðingurinn David Stevenson lýsti vopnakapphlaupinu sem „vítahring síaukinnar stríðsgetu“.

Flotastyrkur veldanna árið 1914
Land Herafli Fjöldi stórra herskipa Tonn
Rússland 55.000 4 348.000
Frakkland 67.000 10 731.000
Bretland 209.000 29 2.205.000
Alls 331.000 43 3.264.000
Þýskaland 79.000 17 1.019.000
Austurríki-Ungverjaland 16.000 3 249.000
Alls 95.000 20 1.268.000
Heimild: Ferguson (1999): 85

[breyta] Áætlanir, vantraust og herkvaðning

Margir stjórnmálafræðingar og sagnfræðingar telja að hernaðaráætlanir Þýskalands, Frakklands og Rússlands hafi magnað upp átökin. Fritz Fischer hefur auk annarra lagt áherslu á Schlieffen-áætlunin, sem var megináætlun Þýskalands ef Þýskaland stæði frammi fyrir stríði gegn Frakklandi og Rússlandi samtímis, hafi í eðli sínu verið mjög ögrandi. Stríð á tveimur vígstöðvum þýddi að Þýskaland yrði að sigra annan andstæðinginn fljótt áður en ráðist yrði gegn hinum og að tíminn væri naumur til þess. Hún fól í sér öfluga sókn á hægri vængnum til þess að hertaka Belgíu og lama franska herinn með því að koma honum í opna skjöldu.

Að svo búnu myndi þýski herinn hraða sér til austurs með járnbrautarlestum og mala þar svifaseinni her Rússa.

Áætlanir Frakka, áætlun XVII, gerði ráð fyrir innrás í Ruhr dalinn, iðnaðarhérað Þýskalands, með það að augnamiði að svifta Þýskaland getunni til að heyja stríð.

Endurskoðuð áætlun Rússa, áætlun XIX, gerði ráð fyrir árásum bæði á Austurríki-Ungverjaland og Þýskaland.

Áætlanir allra þriggja sköpuðu órólegt andrúmsloft taugaveiklunar þar sem herforingjar voru ákafir að ná frumkvæðinu og vinna afgerandi sigra. Nákvæmar áætlanir voru gerðar með nákvæmum tímatöflum. Herforingjar jafnt sem stjórnmálamenn skildu að um leið og boðin bærust væri lítill sem enginn möguleiki á að snúa aftur því þar með væri mikið forskot glatað.

Enn fremur ætti ekki að vanmeta samskiptavandann árið 1914. Allar þjóðirnar notuðu enn símskeyti og sendiherra sem meginleið til samskipta. Boð gátu því tafist klukkustundum og jafnvel dögum saman.

[breyta] Hernaðarhyggja og sjálfræði

Woodrow Wilson forseti Bandaríkjanna kenndi hernaðarhyggju um stríðið. Hugmyndin var sú að yfirstéttin og hernaðarelítan væri of valdamikil í Þýskalandi, Rússlandi og Austurríki-Ungverjalandi og að stríðið væri afleiðing af löngun þeirra eftir hernaðarmætti og fyrirlitningu þeirra á lýðræði. Þetta var meginstef í áróðrinum gegn Þýskalandi, sem varpaði afar neikvæðu ljósi á Vilhjálm II keisara og prússneska hernaðarhefð. Fylgjendur þessarar kenningar kröfðust því afsagnar slíkra þjóðhöfðingja, afnáms stéttakerfisns og endaloka hernaðarhyggjunnar — allt réttlætti þetta bandarísk afskipti af stríðinu um leið og Rússland dró sig í hlé úr stríðinu og yfirgaf bandamenn.

Wilson vonaði að Þjóðabandalagið og almenn afvopnun myndi tryggja varanlegan frið. Hann viðurkenndi einnig að afbrigði hernaðarhyggjunnar lifðu góði lífi innan breska og franska stjórnkerfisins.

[breyta] Hagfræðileg heimsvaldsstefna

Vladimír Lenín hélt því fram að heimsvaldsstefnan væri ástæða stríðsins. Í þessu studdust hann við hagfræði Karls Marx og enska hagfræðingsins Johns A. Hobson, sem hafði áður spáð því að útkoma hagfræðilegrar heimsvaldsstefnu eða ótakmarkaðrar eftirsóknar eftir nýjum mörkuðum myndi leiða til hnattrænna hernaðarátaka.[1] Rök hans fengu þónokkrar undirtektir í upphafi stríðsins og auðvelduðu útbeiðslu marxisma og kommúnisma. Lenín hélt því fram að hagsmunir fjármagnseigenda í hinum ýmsu kapítalísku heimsveldum hefðu ráðið ákvörðunum stjórnvalda og leitt til stríðs.[2]

[breyta] Frekari fróðleikur

  • Coffman, Edward M., The War to End All Wars: The American Military Experience in World War I (1998).
  • Cruttwell, C.R.M.F., A History of the Great War, 1914-1918 (1934).
  • Ellis, John og Cox, Mike, The World War I Databook: The Essential Facts and Figures for All the Combatants (2002).
  • Falls, Cyril, The Great War (1960).
  • Fussell, Paul, The Great War and Modern Memory (1975).
  • Gray, Edwyn A., The U-Boat War, 1914-1918 (1994).
  • Haber, L.F., The Poisonous Cloud: Chemical Warfare in the First World War (1986).
  • Halpern, Paul G., A Naval History of World War I (1995).
  • Hardach, Gerd, The First World War 1914-1918 (1977).
  • Henig, Ruth, The Origins of the First World War (2002).
  • Herwig, Holger H., The First World War: Germany and Austria-Hungary 1914-1918 (1996).
  • Higham, Robin og Dennis E. Showalter (ritstj.), Researching World War I: A Handbook (2003).
  • Howard, Michael, The First World War (2002).
  • Hubatsch, Walther, Germany and the Central Powers in the World War, 1914-1918 (1963).
  • Joll, James, The Origins of the First World War (1984).
  • Keegan, John, The First World War (1999).
  • Kennedy, David M., Over Here: The First World War and American Society (1982).
  • Kennett, Lee B., The First Air War, 1914-1918 (1992).
  • Lee, Dwight E. (ritstj.), The Outbreak of the First World War: Who Was Responsible? (1958).
  • Lyons, Michael J., World War I: A Short History 2. útg. (1999).
  • Morton, Desmond og Granatstein, J.L., Marching to Armageddon: Canadians and the Great War 1914-1919 (1989).
  • Pope, Stephen og Wheal, Elizabeth-Anne (ritstj.), The Macmillan Dictionary of the First World War (1995).
  • Robbins, Keith, The First World War (1993).
  • Silkin, Jon. (ritstj.), The Penguin Book of First World War Poetry 2. útg. (1997).
  • Stevenson, David, Cataclysm: The First World War As Political Tragedy (2004).
  • Stevenson, David, The First World War and International Politics (2005).
  • Stokesbury, James, A Short History of World War I (1981).
  • Strachan, Hew, The First World War: Volume I: To Arms (2004).
  • Taylor, A.J.P., The First World War: An Illustrated History (1963).
  • Tuchman, Barbara, The Guns of August
  • Tucker, Spencer (ritstj.), The Encyclopedia of World War I: A Political, Social, and Military History (2005).
  • Tucker, Spencer (ritstj.), European Powers in the First World War: An Encyclopedia (1999).
  • Venzon, Anne (ritstj.), The United States in the First World War: An Encyclopedia (1995).
  • Winter, J.M., The Experience of World War I 2. útg. (2005).
  • van der Vat, Dan, The Atlantic Campaign. (1988).

[breyta] Tilvísanir

  1. J.A. Hobson, „Imperialism“ (1902) fordham.edu website
  2. „Imperialism: The Highest Stage of Capitalism“, 1917.

[breyta] Tenglar

  Þessi sögugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -