Úkraína
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
|||||
Kjörorð: | |||||
Þjóðsöngur: Ще не вмерла України ні слава, ні воля (Shche ne vmerla Ukrayiny ni slava, ni volya) (umritað) (Sæmd Úkraínu hefur ekki glatast, og ekki frelsi hennar) |
|||||
![]() |
|||||
Höfuðborg | Kænugarður | ||||
Opinbert tungumál | úkraínska | ||||
Stjórnarfar | lýðveldi, hálf-forsetaræði Viktor Júsenkó Júlía Tímósénkó Arsení Jatsenjúk |
||||
frá Sovétríkjunum |
|||||
- Yfirlýst | 24. ágúst 1991 | ||||
- Þjóðaratkvæðagreiðsla | 1. desember 1991 | ||||
- Staðfest | 25. desember 1991 | ||||
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
44. sæti 603.628 km² 7 |
||||
Mannfjöldi • Samtals (2008) • Þéttleiki byggðar |
27. sæti 46.372.700 76,82/km² |
||||
VLF (KMJ) • Samtals • á mann |
áætl. 2007 399,866 millj. dala (29. sæti) 8.624 dalir (83. sæti) |
||||
VÞL | 0.788 (76. sæti) | ||||
Gjaldmiðill | Hryvnia, гривня (UAH) | ||||
Tímabelti | EET (UTC+2) sumartími: EEST (UTC+3) |
||||
Þjóðarlén | .ua | ||||
Landsnúmer | 380 |
Úkraína (úkraínska: Україна, rússneska: Украина) er lýðveldi í Austur-Evrópu við strönd Svartahafs. Það á landamæri að Rússlandi í austri, Hvíta-Rússlandi í norðri og Póllandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Rúmeníu og Moldóvu í vestri.
[breyta] Saga
Úkraína var miðja fyrsta slavneska ríkisins, Garðaríkis sem stofnað var af Væringjum (sænskum víkingum) og var stærsta og öflugasta ríki Evrópu á 10. og 11. öld. Innbyrðis deilur og innrás Mongóla veiktu ríkið sem var þá innlimað í Stórhertogadæmið Litháen sem seinna varð að Pólsk-Litháenska samveldinu. Menningarleg og trúarleg arfleifð Garðaríkis hélt lífinu í úkraínskri þjóðernishyggju næstu aldirnar. Nýtt ríki kósakka var stofnað í Úkraínu um miðja 17. öld eftir uppreisn gegn Pólverjum, ríkið var formlega hluti af Rússneska keisaradæminu en var í raun nánast alveg sjálfstætt í meira en 100 ár. Á seinni hluta 18. aldar lögðu Rússar undir sig megnið af landi Úkraínu.
Eftir fall Rússneska keisaradæmisins 1917 lýsti Úkraína yfir sjálfstæði sínu um skamma hríð (1917-1920) en var þá innlimað á ný, nú inn í Sovétríkin. Tvær manngerðar hungursneyðir riðu yfir landið (1921-1922 og 1932-1933) þegar samyrkjubúskapur var innleiddur með valdi í landinu, yfir 8 milljónir manna létu lífið í þessum hörmungum. Úkraína varð að blóðugum vígvelli í Síðari heimsstyrjöld þar sem herir Þýskalands og Sovétríkjanna börðust hatrammri baráttu sem kostaði 7-8 milljónir mannslífa. Sjálfstæði náðist á ný með falli Sovétríkjanna 1991 en mörg vandamál blasa við hinu unga lýðveldi. Völd ríkisins eru ennþá gríðarleg og spilling er mikil sem hefur tafið fyrir efnahagsumbótum, einkavæðingu og innleiðslu borgaralegra réttinda.
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði