Guernsey
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Guernsey“

Guernsey (eða Gvernsey) er eyja í Ermarsundi og annað tveggja umdæma Ermarsundseyja. Umdæminu tilheyra, auk Guernsey, eyjarnar Alderney, Sark, Herm, Jethou, Brecqhou, Burhou og fleiri smáeyjar. Bretland hefur umsjón með utanríkismálum og varnarmálum eyjanna, en þær eru þó ekki hluti af breska konungdæminu heldur hertogadæminu Normandí, en hertoginn af Normandí er einn af titlum Bretadrottningar. Guernsey hefur því sitt eigið löggjafarþing.
Íbúar Guernseyjar eru um 65.000 talsins.
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði